156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

orkuöryggi garðyrkjubænda.

[12:01]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er svolítið hugsi yfir þessu öllu saman. Þann 21. desember síðastliðinn var mynduð ný ríkisstjórn og kynnt stefnuyfirlýsing. Þar koma fram stefnumið um stóraukna orkuöflun, um aukinn stuðning við garðyrkjubændur og forgang almennra notenda í raforkukerfinu, um breytingar á lagaumgjörð raforkukerfisins til að tryggja forgang almennra notenda og það er sérstaklega fjallað um málefni garðyrkjubænda þar. Nú er stjórnarandstaðan í einhverri ofboðslegri fýlu yfir því að hv. þingmaður í stjórnarliðinu sé hér með sérstaka umræðu um þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og þessa stefnu ríkisstjórnarinnar. Eigum við kannski bara að stíga upp úr þessum skotgröfum? Erum við hérna inni til þess að vinna að hag lands og þjóðar eða er þetta bara einhver vinsældakeppni, einhver keppni um það hver fær einhverja hugmynd eða hver notar eitthvert sérstakt orðalag? Mér finnst þetta með miklum ólíkindum (Forseti hringir.) og mér finnst þetta vera þingmönnum stjórnarandstöðunnar til minnkunar. Ég held við ættum að að vinna frekar saman að þessum málefnum, þeim málefnum sem koma fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) og mér heyrist í sumum tilvikum að sé mikil samstaða um, m.a. samstaða um að vinda ofan af ákveðnum hægagangi, rjúfa ákveðna kyrrstöðu, höggva á ákveðna hnúta. (Forseti hringir.) Við skulum bara gera þetta saman. Gerum þetta bara saman.

(Forseti (BrynH): )Forseti er enn með þó nokkra hv. þingmenn á mælendaskrá og vill minna á tímamörkin.