orkuöryggi garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Þetta er mín fyrsta vika á Alþingi, hinu háa Alþingi, og mér finnst þetta mjög sérstök umræða sem hér á sér stað og vera til marks um mikla málefnafátækt hjá fulltrúum stjórnarandstöðunnar. Það fór fram sérstök umræða um orkumál og stöðu garðyrkjubænda sem var, að mér fannst vera, talsverður samhljómur í og ég átta mig hreinlega ekki á þeim málflutningi sem hér fer fram af forsvarsmönnum stjórnarandstöðunnar. Þeir ýmist vilja að það sé stöðugt verið að horfa í baksýnisspegilinn eða frábiðja sér að það sé verið að horfa í baksýnisspegilinn og helst ekkert talað um fortíðina. Það er mjög sérstakt að verða vitni að því að þeir geti ekki einu sinni komið sér saman um það hvort það eigi að horfa í baksýnisspegilinn eða ekki. En það sem ég tek þó helst út úr þessari umræðu er að það er mjög greinilegt að þegar verkstjórn og kraftur nýrrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er borinn saman við verkleysi og verkstjórnarleysi síðustu ríkisstjórnar þá líður þeim mjög illa. Ég held að það sé það sem er á bak við þessa umræðu hér í dag.