orkuöryggi garðyrkjubænda.
Virðulegur forseti. Þetta er áhugaverð umræða. Af hverju? Vegna þess að við erum að sjá ný vinnubrögð. Við erum að sjá þau vinnubrögð að ríkisstjórnarflokkar sem komu með stórar yfirlýsingar, sögðust ætla að gera mjög mikið af hlutum, eru að nota — og það ber að hrósa þeim fyrir það — það sem var vel gert áður. Það er allt í lagi. En að kannast ekki við það, reyna að búa til nýja sögu, það er ekki gott, virðulegi forseti, og það verða ríkisstjórnarflokkarnir að eiga við sig. En ríkisstjórnarflokkarnir geta ekki gert athugasemdir við að það sé vakin athygli á því. Orkumálin eru kannski mjög gott dæmi þar um því að jarðhitaleitarátakið var ekki að fara af stað núna. Það voru settir 1,5 milljarðar í það á síðasta kjörtímabili. Nú setja menn 1 milljarð og segja: Við erum með það mesta á þessari öld. Það er einfaldlega rangt. Það sem menn eru að njóta góðs af (Forseti hringir.) eru verk síðustu ríkisstjórnar. Svo verða hv. stjórnarþingmenn að ákveða það (Forseti hringir.) hvort þeir séu þeir menn, það fólk að segja frá því eða reyna að skrifa söguna aftur. En hún verður leiðrétt.