156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

orkuöryggi garðyrkjubænda.

[12:06]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er afar einkennilegt að verða vitni að því að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar noti þennan lið, fundarstjórn forseta, til að vinna sig út úr því sorgarferli sem þeir virðast vera að fara í gegnum, þ.e. að þeir eru búnir að missa völdin. Ég vona svo sannarlega að þessi liður í dagskrá þingsins verði ekki til annars en að þeir nái bata og komi þá glaðari í næstu umræðu [Hlátur í þingsal.] því að það er alveg átakanlegt að fylgjast með því að menn séu hér að fara á taugum yfir því að fólk sé sammála þeim [Hlátur í þingsal.] og sé mögulega að taka upp eitthvert mál sem þeir hafa áður lagt fram eða lagt gott til. Það tekur ekki frá þeim ábyrgðina á því að þeir hafa skilið við þennan málaflokk í þvílíkum ólestri að það þarf svo sannarlega að láta hendur standa fram úr ermum. Við óskum liðsinnis þeirra áfram því það er auðvitað ekki ásættanlegt að garðyrkjubændur séu að fá svimandi háa reikninga, stigvaxandi hærri reikninga með hverjum mánuðinum sem líður.