orkuöryggi garðyrkjubænda.
Frú forseti. Hér erum við að þræta um formið, ekki efnið. Svo dásamlega „grundigar“ eru þessar þrætur að jafnvel sjálfir Píratar hefðu verið stoltir af því [Hlátur í þingsal.] hversu ótrúlega mikið er farið á svig við heiðursmannasamkomulag og sett lög, þingsköp og hvað það nú heitir.
Frú forseti. Þetta getum við ekki. Það er margfalt búið frá því að þetta þing tók til starfa að sækjast í fundarstjórn og í umræður úti í samfélaginu um það hversu illa þessi ríkisstjórn er að sér í einhverjum ímynduðum eða settum verklagsreglum. Svo illa er hún að sér að þetta þing er ekki starfhæft. Þetta þing er starfhæft og hefur ekki verið svona starfhæft í mörg, mörg ár. Ég vil bara ítreka það. Og fyrst hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson minntist hér áðan á gömlu Samfylkinguna og að það hefði verið hún (Gripið fram í.) sem hefði komið af stað einhvers konar stöðnun sem átti sér stað í boði síðustu ríkisstjórnar þá er mér algerlega fyrirmunað að skilja það. (Forseti hringir.) Ég vil minna hv. þingmann á að það var ekki Samfylkingin sem var með hv. þingmanni í ríkisstjórn (Forseti hringir.) sem á „kommúnalt“ allan heiðurinn af þessari orkustöðnun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)