orkuöryggi garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Rödd skynseminnar og ríkisstjórnarinnar, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, hafði alveg rétt fyrir sér. Við eigum að vera jákvæð og uppbyggileg. Kærleikshringurinn hefur farið vel í hv. þingmenn og ég ætla að nota tækifærið og hrósa sérstaklega hv. stjórnarþingmönnum. Af hverju? Fyrir nokkrum árum, í upphafi síðasta kjörtímabils, voru Samfylkingin og Viðreisn með næststærsta orkufyrirtækið og gáfu þessi skilaboð: Það er ekki réttlætanlegt að virkja meira. Þau hafa algjörlega skipt um skoðun. (Gripið fram í.) Enginn þessara hv. þingmanna í þessum flokkum, ríkisstjórnarflokkum, greiddi atkvæði með rammanum, enginn, ekki einn. En núna eru þeir tilbúnir og kominn er fram rammi sem er tilbúinn og það er annar á borði ráðherrans sem við viljum fá, reyndar tveir, og einföldunarfrumvarp sem miðar að því að gera það sem heitir á slæmri íslensku „one stop shop“. Það eru að vísu sameinaðar stofnanir sem hjálpa þeim. Ég er rosalega ánægður með þessa breytingu. En af því að hv. þingmaður kallaði hér fram í áðan (Forseti hringir.) og talaði um að hann vildi fá skýringar hjá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni sem upplifði þetta og þurfti að taka slaginn, þá er þetta ástæðan. (Forseti hringir.) Þetta liggur allt fyrir. Samfylkingin er búin að skipta algjörlega um skoðun í orkumálum og við fögnum því í anda kærleikshringsins. (Gripið fram í.) Bara til hamingju.