156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030. Samkvæmt lögum um opinber fjármál er fjármálastefnan grundvöllur stefnumótunar í opinberum fjármálum. Hún felur í sér vikmörk afkomu og skuldaþróun opinberra aðila í heild, þ.e. A-hluta ríkis og sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja þeirra. Fjármálastefnan leggur stóru línurnar í opinberum fjármálum en nánari útfærsla birtist í árlegri fjármálaáætlun og fjárlagafrumvarpi hvers árs. Þar birtast pólitískar áherslur og áætlanir um einstök útgjöld og tekjustofna.

Forseti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að ná skuli stjórn á fjármálum ríkisins og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta, m.a. með því að taka upp stöðugleikareglu og stöðva hallarekstur. Í þessum orðum felst skýr ásetningur um að leggja allt kapp á að ná þeim markmiðum um stöðugleika og sjálfbærni sem felast í lögum um opinber fjármál. Fjármálastefnan staðfestir þennan ásetning og varðar leiðina fyrir þróun afkomu og skulda ríkissjóðs og annarra opinberra aðila frá einu ári til annars á tímabilinu. Lykilatriðin í fjármálastefnunni eru þrjú.

Í fyrsta lagi: Sá hallarekstur sem verið hefur á A1-hluta hins opinbera verði stöðvaður þegar á árinu 2028 og í kjölfarið verði heildarafkoman jákvæð. A1-hluti ríkissjóðs verði hins vegar hallalaust þegar á árinu 2027.

Í öðru lagi: Að samhliða verði gripið í taumana á skuldaþróun hins opinbera þannig að skuldahlutfallið taki að nálgast 30% af vergri landsframleiðslu með markvissum hætti og nái því marki innan ásættanlegs tíma. Skuldaþróunaráætlun fyrir hið opinbera skal fylgja þeirri meginstefnu að andvirði af sölu ríkiseigna verði ráðstafað til niðurgreiðslu skulda.

Í þriðja lagi: Í samræmi við þessi áform um aðhaldssama fjármálastefnu verði raunvöxtur útgjalda á komandi árum minni en vöxtur landsframleiðslu þannig að útgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu fari lækkandi.

Forseti. Full þörf er á varfærni og aðhaldssamri fjármálastefnu sem stuðlar að aukinni sjálfbærni opinberra fjármála. Skuldahlutföll hins opinbera eru of há. Ekki hefur tekist að lækka þau með markvissum hætti og hallarekstur er meiri en þolað verður til lengdar. Þessu ætlar ríkisstjórnin að breyta. Opinberum fjármálum hefur verið beitt til að veita efnahagslegt mótvægi gegn tveimur stóráföllum, fjármálakreppu og heimsfaraldri. Að óbreyttu er hið opinbera í veikri stöðu og veikari stöðu en það var fyrir faraldurinn til að standa af sér óvænt skakkaföll. Með þessari fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar er brugðist við þessari veiku stöðu með markvissum hætti.

Mikilvægt er að fjármálastefna hins opinbera leggist á árarnar með peningamálastefnu Seðlabankans. Verðbólgan hefur reynst þrálát og hún er enn umtalsvert yfir 2,5% verðbólgumarkmiði. Hið sama gildir um verðbólguvæntingar. Vaxtastigið er hátt, hvort sem litið er til skemmri eða lengri tíma. Atvinnuleysi er aftur á móti lítið og ýmis merki um að mestu kælingaráhrif mikilla vaxtahækkana séu að baki og að eftirspurn sé að taka við sér. Aðhaldssemi í fjármálastefnunni við þessar aðstæður styður við hjöðnun verðbólgu og vaxta með tilheyrandi ávinningi fyrir heimili og atvinnulíf.

Forseti. Í fjármálastefnunni er gengið út frá breyttu fyrirkomulagi á tölulegum fjármálareglum laga um opinber fjármál og er frumvarp þess efnis nú í meðferð þingsins og stefnt að afgreiðslu þess frá Alþingi áður en þingsályktunartillagan um fjármálastefnu verður afgreidd. Breytingin felur í sér að tekin er upp svokölluð stöðugleikaregla fyrir stefnumörkun í ríkisfjármálum. Reglan felur í sér hámark á árlegum útgjaldavexti að raunvirði í fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Það hámark, 2%, tekur mið af vaxtargetu landsframleiðslunnar til lengri tíma. Helsta markmið þessara breytinga er að fjármálareglur stuðli samtímis að sjálfbærni og stöðugleika en til þessa hafa fjármálareglur ekki stutt nægilega við stöðugleika. Í staðinn þurfa stjórnvöld, þegar skuldir eru umfram hámark, að setja fram skýra skuldaþróunaráætlun um hvernig skilyrði laganna um tölusett skuldahámark verði uppfyllt innan ásættanlegs tíma.

Forseti. Staða efnahagsmála og þeir áhrifaþættir sem endurspeglast í því háa vaxtastigi sem nú ríkir eru góð rök fyrir varfærinni ríkisfjármálastefnu. Auk hárra vaxta er þróttur í efnahagslífinu, verðbólga og verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði, raungengi er hátt í sögulegu samhengi og staða á vinnumarkaði sterk. Efnahagsaðstæður eru því þannig að aðhald í ríkisfjármálum styður við lífskjör heimilanna en ekki öfugt.

Ekki er ástæða til að ætla að aðhald í opinberum fjármálum leiði til kólnunar efnahagsumsvifa. Þvert á móti styður ábyrg fjármálastefna við hjöðnun verðbólgu og lægra vaxtastig. Lægri vextir skapa forsendur fyrir aukin umsvif í hagkerfinu, svo sem með fjárfestingu sem styður við verðmætasköpun til lengdar, og eru að auki til þess fallnir að styrkja fjárhag skuldsettra heimila og fyrirtækja. Hvert prósentustig sem vaxtastig hér á landi lækkar sparar heimilum 35 milljarða í vaxtakostnað. Það jafngildir næstum öllum húsnæðisstuðningi ríkissjóðs.

Forseti. Þrátt fyrir vöxt efnahagsumsvifa á síðustu árum er hið opinbera enn rekið með halla. Með nýrri fjármálastefnu á að snúa þeirri þróun við og birtast fyrrnefnd markmið stjórnvalda í þeim tölulegu viðmiðum sem hún setur. Þar er gert ráð fyrir að ríkissjóður muni ná jöfnuði í rekstri þegar árið 2027 og sveitarfélögin ári síðar. Fjármálastefnan endurspeglar því það meginmarkmið stjórnvalda að endurheimta stöðugleika og sjálfbærni opinberra fjármála.

Skuldahlutfall hins opinbera er nú ríflega níu prósentustigum yfir leyfilegu hámarki en gert er ráð fyrir að hlutfallið verði um 39% af vergri landsframleiðslu í lok yfirstandandi árs. Stjórnvöld setja sér það markmið í fjármálastefnunni að skuldahlutfallið verði innan við 37% af vergri landsframleiðslu árið 2030 og lækki því um rúmlega tvö prósentustig á því tímabili sem fjármálastefnan tekur til. Þá verður aðkoma hins opinbera nægilega jákvæð til þess að lækkun skulda geti orðið enn meiri þegar tímabili þessarar fjármálastefnu lýkur. Tekjuáætlun, sem er undirliggjandi markmiðum fjármálastefnu, gerir ráð fyrir að heildartekjur ríkisins nemi 30,2% af vergri landsframleiðslu á árinu 2025 og samanlagt heildarumfang hins opinbera verði 42% af vergri landsframleiðslu og lækki því lítillega á tímabilinu.

Forseti. Ákvarðanir um útgjöld hins opinbera eru því marki brenndar að ekki er hægt að ráðast í öll góð verkefni heldur verður að forgangsraða þeim takmörkuðu fjármunum sem eru til skiptanna. Það er verkefni ríkisstjórnar hvers tíma og við tökum það verkefni okkar alvarlega. Næstu ár og áratugir krefjast langtímahugsunar. Við viljum verja og bæta lífskjör og verðmætasköpun þrátt fyrir að glíma á sama tíma við hlutfallslega fækkun vinnandi handa, aukinn kostnað vegna heilbrigðisþjónustu og umönnun aldraðra og fatlaðra.

Heildarútgjöld hins opinbera munu samkvæmt uppfærðri áætlun nema 43% af vergri landsframleiðslu á yfirstandandi ári og er það nokkuð hærra hlutfall en árin fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er til marks um að vöxtur hins opinbera frá þeim tíma hafi ekki að fullu gengið til baka. Á næstu árum mun þetta hlutfall lækka samhliða hóflegum útgjaldavexti hins opinbera og aukinni verðmætasköpun í íslensku hagkerfi. Heildarútgjöld hins opinbera af vergri landsframleiðslu munu dragast saman á tímabili fjármálastefnu og verða komin niður í undir 41,1% árið 2030.

Forseti. Framangreind markmið um útgjaldaþróun grundvallast á áformum um hóflegan raunvöxt útgjalda ríkissjóðs í samræmi við skilyrði stöðugleikareglu. Undirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir að raunvöxtur útgjalda verði 2,6% milli áranna 2025 og 2026 en 1,3% að jafnaði á síðari árum stefnunnar. Hóflegur raunvöxtur útgjalda á tímabili stefnunnar er forsenda þess að markmið um bætta afkomu hins opinbera náist. Eitt mikilvægasta markmið fjármálastefnunnar 2026–2030 er að ná afkomu sem tryggir lækkun skuldahlutfalls hins opinbera undir 30% af vergri landsframleiðslu innan ásættanlegs tíma. Skuldaþróunaráætlun fylgir þeirri meginstefnu stjórnvalda að einskiptistekjum, svo sem vegna sölu ríkiseigna, verði ráðstafað til niðurgreiðslu skulda.

Forseti. Í greinargerð þingsályktunartillögunnar er ítarleg greining á efnahagsstöðunni og þeim grunni sem stefnan er reist á. Þá eru í viðauka settar inn skýringar sem gera grein fyrir grunngildum og tölulegum skilyrðum laga um opinber fjármál. Ég legg til að málinu verði vísað til hv. fjárlaganefndar og til síðari umræðu að lokinni þessari umræðu.