fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna og framsöguna. Það fer ekki fram hjá neinum og kemur skýrt fram hjá hæstv. ráðherra að hann tekur við góðu búi. En það sem vekur athygli þegar maður skoðar greinargerð þessa frumvarps eða réttara sagt þessarar stefnu er kaflinn um tekjustefnuna. Þar segir, með leyfi forseta:
„Við mótun skattastefnu þarf að huga að fjölmörgum þáttum, þar sem breytingar hafa bein áhrif á efnahag heimila og rekstrarskilyrði fyrirtækja.“
Síðan kemur, með leyfi, virðulegi forseti:
„Tækifæri eru til staðar til að nýta núverandi tekjustofna til frekari tekjuöflunar, án þess þó að leggja meiri álögur á einstaklinga, s.s. með því að fækka ívilnandi úrræðum og koma í veg fyrir skattasniðgöngu.“
Ég held, virðulegi forseti, að við þurfum að fá að vita hvað er átt við þarna því að það er náttúrlega töfrum líkast að þú getir gert svona hluti án þess að það hafi áhrif á neinn. Ef þetta er hægt þá held ég að þetta yrði mikil útflutningsvara og að allar þjóðir heims myndu fagna þessu því að fyrir alla heitir þetta nú bara skattahækkanir. Og hvaða skattahækkanir eru þetta? Ástæðan fyrir því að ég spyr er sú að hæstv. ráðherra leggur mikla áherslu á stöðugleika og festu og maður áttar sig ekki á því að á sama tíma og hann talar um stöðugleika og festu, og það er hér talað sérstaklega um að forðast óvæntar og fyrirvaralitlar breytingar á rekstrarumhverfi fyrirtækja og heimila, þá komi hann með þessar skattahækkanir á sjávarútveginn sem svo sannarlega á að keyra í gegn mjög hratt. Hvernig samræmist þetta stöðugleika- og festureglunni, framganga ríkisstjórnarinnar?
Þannig að ég spyr að tvennu, virðulegur forseti. Annars vegar: Hvaða skattahækkanir er verið að boða hér? Hver mun sleppa því að fá ívilnanir sem fær þær núna? Og hvernig fer þetta saman (Forseti hringir.) við fjármálareglur sem hæstv. ráðherra talar fyrir, að sjá þessar (Forseti hringir.) fyrirvaralausu breytingar sem við erum að horfa á með skattahækkanir og sjávarútveginn?