156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:30]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ágætu spurningu. Nú verð ég að viðurkenna að það að taka við ríkissjóði 9% yfir skuldamarkmiði og í viðvarandi halla heitir nú ekki í minni bók að taka við góðu búi en látum það liggja á milli hluta. Hv. þingmaður spyr um skattkerfið og tilfellið er að frá því að við tókum skattkerfið til endurskoðunar hefur tilhneigingin verið sú að flækja það, örugglega í góðum tilgangi og örugglega er hver ákvörðun fyrir sig skynsamleg en það sem gerist er að það verður erfitt að framfylgja tekjuöflunarmarkmiðinu vegna flækjustigsins. Það er til skoðunar og munu þá koma hér inn í þingið væntanlega á næsta þingi eða í haust tillögur um það hvar er hægt að gera betur þar. Það er áhugavert að heyra það viðhorf að það sé ekki hægt að gera betur í skattframkvæmd og innheimtu. Ég er þar ósammála hv. þingmanni. (Gripið fram í.)