156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra kýs að svara ekki spurningunum heldur leggja mér orð í munn. Það finnst mér miður og það er ekki góð byrjun á þessari umræðu. Ég endurtek spurninguna. Reyndar er kaldhæðnislegt að hæstv. ráðherra byrji að tala um að það séu svo miklir möguleikar vegna þess að skattkerfið er flókið. Hvað gerir hæstv. ráðherra, hvað er það fyrsta sem hann gerir? Hann er að koma fram með tillögur um flækingu á kerfinu þegar kemur að skattlagningu sjávarútvegs. Ekki er það einföldun. En aftur: Hvaða skattahækkanir er um að ræða, því að það er verið að tala um möguleika á því að auka tekjur? Og aftur: Hvernig fer það saman að tala hér um sjálfbærni, tala hér um festu, tala um fyrirsjáanleika og ganga fram eins og hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn eru búin að ganga fram núna varðandi sjávarútveginn? Þar eru menn svo sannarlega að flækja skattkerfið sem er til staðar og þvert á það sem hæstv. ráðherra var í útúrsnúningum sínum að segja að hann ætlaði alls ekki að gera.