156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans spurningu. Á sama hátt og ég kom að því áðan hvað það er að taka við góðu búi þá erum við heldur ekki sammála um hvað er flækjustig í skattheimtu vegna þess að breytingarnar sem eru lagðar til á veiðigjaldi, sem raunar eru ekki til umræðu hér í dag, eru alls ekkert viðbótarflækjustig. Það er bara með mjög einföldum hætti verið að miða frekar við eina tölu heldur en aðra, þannig að ég kannast ekki við hvaðan sú túlkun þingmannsins kemur.