156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:34]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta. Hann segir að ný fjármálastefna ríkisstjórnarinnar kveði á um hóflegan útgjaldavöxt og auk þess segir hann að þetta sé bæði skýr stefna um aðhald og skuldalækkun. Á sama tíma virðist ríkisstjórnin ætla í mjög útgjaldafrek verkefni á hinum ýmsu sviðum og maður veltir fyrir sér hvernig þetta kemur heim og saman af því að í þessari stefnu er útgjaldavöxtur um tugi milljarða en á sama tíma virðast loforðin vera margfalt fleiri.

Ég með nokkrar spurningar fyrir hæstv. ráðherra. Það kom ekki mjög skýrt fram hér í fyrra andsvari við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson hvernig ætti að hækka skatta til að mæta þessu. Ef ekki á að hækka tekjuskatt á launatekjur t.d., hvaða skattar verða þá hækkaðir til að mæta þessum loforðum ríkisstjórnarinnar? Það þarf meira til en komið hefur fram núna. Ég velti líka fyrir mér hvort búið sé að vinna samhliða fjármálastefnu og fjármálaáætlun kostnaðarmat á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem kom fyrir áramót og hvort þetta kostnaðarmat liggi fyrir. Eða er verið núna með þessari fjármálastefnu kannski að slá strax eitthvað út af borðinu, eitthvað sem er sett á frest eftir að ríkisstjórnin áttaði sig á því hversu útgjaldafrek stefnuyfirlýsing hennar var?

Að lokum velti ég fyrir mér um frumvarpið sem hér er til meðferðar í þinginu um breytingu á lögum um opinber fjármál, ef það nær ekki fram að ganga, hvort hæstv. ráðherra telur að þessi fjármálastefna uppfylli þá skilyrði sömu laga um skuldalækkun?