fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra svarar engri af þeim spurningum sem ég bar upp í andsvari. Ég var einmitt að vísa til þess að það er ekki mjög mikil útgjaldaaukning í þessari fjármálastefnu en ríkisstjórnin hefur lofað og komið með í stefnuyfirlýsingu gríðarleg útgjaldaloforð. Ég spyr þá hæstv. ráðherra aftur: Hvernig á þessi fjármálastefna að duga fyrir þessum gríðarlegu útgjaldafreku verkefnum ríkisstjórnarinnar? Verður hagræðingin svona mikil? Það sýndist mér ekki á viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við tillögum hagræðingarnefndarinnar sem voru margar hverjar algjörlega frábærar og ég styð heils hugar. En mér sýndist viðbrögðin hjá hverjum ráðherranum á fætur öðrum vera einmitt að bera af sér þessar tillögur, þannig að ég spyr: Verður útgjaldaaukningin svona lítil? Hvaða verkefni mun ríkisstjórnin þá ekki standa við? Þarf ég að bíða mánudagsins líka til að fá svar við því? Hvaða skatta á þá að hækka og stenst þessi fjármálaáætlun lögin ef frumvarpið fer ekki í gegn, svo ég ítreki spurningarnar.