fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Það er ákaflega ánægjulegt að sjá hversu spennt hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er fyrir framlagningu fjármálaáætlunar. Ég hlakka til að fara yfir hana hér eftir helgina og fara yfir þá liði en vona að hún sýni því skilning að ég er ekki að víkjast undan því að svara, sem ég geri vanalega ekki, heldur einungis að segja að hver umræða á sér sinn tíma. Sá tími er raunar bara eftir helgina þannig að við þurfum ekki að bíða lengi. Varðandi núgildandi lög um opinber fjármál og hvort þessi áætlun standist þau þá er einn liður þeirra sem yrði alltaf og hefði alltaf orðið ákaflega erfiður og það er skuldalækkunarreglan en hana stenst áætlunin með nokkrum bravúr þannig að ég get alla vega fullvissað hv. þingmann um það.