156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:40]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Við ræðum hér framlagningu fjármálastefnu. Hæstv. ráðherra talaði um veika stöðu sem væri uppi núna. Ég held reyndar að flestar Evrópuþjóðir væru gríðarlega ánægðar með að vera í þeirri stöðu sem við Íslendingar erum í, bæði í ríkisfjármálum og efnahagsmálum þjóðarinnar. Mér sýnist að umræðan hér sé að einhverju leyti framhald á því sem við vorum að ræða í fjárlögunum sem við kláruðum hér í þinginu í nóvember síðastliðnum, hallalaus ríkisrekstur 2027, mér sýnist þetta vera á svipuðum nótum.

Aðeins út í umræðuna um gott bú: Við höfum farið í gegnum gríðarlegar efnahagshamfarir á undanförnum árum, það hefur verið gríðarlegt álag á ríkissjóði og rekstri ríkisins, en það er einhvern veginn þannig, bæði í síðastliðnum kosningum og eftir að ný ríkisstjórn tók við, að það er eins og fall WOW air 2019, Covid sem brast á í mars 2020, stríðið í Úkraínu 2022, Grindavíkureldar sem hófust fyrir rúmu ári — þetta gerist allt á fimm árum en það er eins og þetta hafi ekki gerst. Hvað vill hæstv. ráðherra segja um þennan þátt? Af hverju hverfur þetta í allri umræðu þegar verið er að ræða ríkisfjármálin? Það kemur mér töluvert á óvart. Síðan langaði mig rétt að koma inn á afnám ívilnana, hvort hæstv. ráðherra vilji koma eitthvað inn á það hvað verið er að hugsa varðandi þær. Að lokum með Íslandsbanka: Mun einskiptisaðgerð eins og t.d. sala á Íslandsbanka að fullu koma til niðurgreiðslu skulda? Þá er þetta svolítið óljóst í fjármálastefnunni eins og hún er lögð fram núna.