fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans spurningar. Nú getur það ekki verið einhvern veginn satt á sama tíma að staðan sé frábær og að skýringin á því af hverju hún er ekki góð sé að áföll hafi riðið yfir. En látum það liggja á milli hluta. Við höfum ákveðin markmið í lögum um opinber fjármál um skuldahlutfall sem og almenn viðmið um sjálfbæran rekstur ríkisins, en hvorugt hefur náðst. Ég ætla ekki að vera ósanngjarn hér í ræðustól og tek því undir það með hv. þingmanni að ófyrirséð áföll hafa að sjálfsögðu riðið yfir íslenska hagkerfið eins og mörg önnur. Vandamálið er meira það að vöxtur ríkisútgjalda fyrir það áfall takmarkaði svigrúm ríkisins til að takast á við það, þ.e. að rekstur ríkissjóðs var þegar orðinn ósjálfbær á árinu 2019. Ég hygg að hér sé meiri samstaða en við látum í veðri vaka. En það er afar óheppilegt þegar ekki er hægt að ná sjálfbærum rekstri ríkisins við venjuleg skilyrði.