156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:45]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna og bið hann afsökunar á því að hafa ekki tekið sérstaklega fram það sem ég þó tók skýrt fram í ræðu minni, að einskiptistekjur af sölu eigna renni til lækkunar skulda. Ég held að það sé ekki uppbyggilegt að við eltum mikið ólar við ákvarðanir fortíðarinnar þegar ófyrirséðir hlutir eins og Covid eiga sér stað. Það má hins vegar velta þeirri spurningu upp hvort sá hallarekstur sem þá var stofnað til hafi ekki staðið lengur en skynsamlegt var, sérstaklega í ljósi þess að við lifum í ófyrirsjáanlegum heimi þar sem óvæntir atburðir geta gerst og það er mjög mikilvægt að við í þessum sal sýnum ábyrgð í því að halda ríkissjóði þannig að hann sé í stakk búinn að takast á við hið ófyrirséða.