fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það var greinilegt að hv. þingmanni var mikið niðri fyrir enda er verið að breyta um kúrs. Auðvitað er ekki hægt að horfa fram hjá því að ríkissjóður hefur verið rekinn undir forystu Sjálfstæðisflokksins með hátt í 1.000 milljarða halla síðan hann tók við völdum. Við erum að leggja í þá vegferð að snúa við og reka ríkissjóð réttum megin við núllið. Ég hefði talið að hv. þingmaður ætti nú frekar að vera fullur fögnuðar yfir þessum viðsnúningi en hitt.
Það var greinilegt að einn hópur manna var honum hugleiknari en annar; stórútgerðin. Hann talar um mikinn ófyrirsjáanleika og að það sé jafnvel vegið illa að þeim en hann er ekki meiri en svo, frú forseti, en að þessar auknu tekjur munu ekki verða innheimtar fyrr en á næsta almanaksári. Þessir ágætu útgerðarmenn geta þá safnað í sarpinn og greitt þessa upphæð sem hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni vex mjög í augum. Þetta er því ekki einhver ófyrirsjáanleiki sem þeir standa frammi fyrir, alls ekki.