156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[12:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst aðeins um það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir og gert. Ef hv. þingmaður hefur aðeins fylgst með íslenskum stjórnmálum, aðeins, ekki mikið, bara aðeins, örlítið, þá var það þannig að hér varð fjármálahrun, alþjóðlegt fjármálahrun. Þá voru Sjálfstæðismenn búnir að beita sér fyrir því að ríkissjóður var mjög skuldlítill. Síðan kom hér heimsfaraldur og ef ekki hefði verið fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins í því að greiða niður skuldir — það er ekki sýnt í þessu línuriti en ég er að vísa sérstaklega til áranna 2015, 2016, 2017, 2018 og 2019 — þá hefðum við lent í gríðarlegum vandræðum. En það var búið að greiða niður skuldir. Það er það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf staðið fyrir og mun alltaf standa fyrir.

Hv. þingmaður talar eins og hér sé verið að breyta um kúrs. Það liggur alveg fyrir hvar Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið í þessum málum og hefur fengið mikinn stuðning til þess fram til þessa. Orðræða hv. þingmanns — það er nefnilega það sem veldur mér áhyggjum, þessi stórkostlegi popúlismi ríkisstjórnarinnar, alveg eins og vinstri menn hafa alltaf verið. Menn segja bara: Þarna er einhver karl, rosalega vondur, og ég ætla að taka hann. Hann á að borga fyrir þetta allt saman, vondi karlinn. Þetta er nákvæmlega orðræða hv. þingmanns og ríkisstjórnarflokkanna, að segja bara stórútgerðin nógu oft. Reyndar er þessi stórútgerð í eigu lífeyrissjóðanna en aðalatriðið er þetta: Ef við göngum fram eins og menn ætla þá erum við að stórskaða innlenda framleiðslu, fiskvinnslu. Ég myndi ætla að hv. þingmaður ætti að hafa áhyggjur af því. En hv. þingmaður hefur ekki áhyggjur af því, aðalatriðið er að slá pólitískar keilur, finna einhverja sem eru óvinsælir í þjóðfélaginu og segja: Við ætlum að taka þá. (Forseti hringir.) Og ef einhver segist hafa áhyggjur af almenningi og fiskvinnslu þá er sagt: (Forseti hringir.) Nei, nei, þú ert að gæta hagsmuna vondu karlanna. (Forseti hringir.) Þetta heitir á íslensku popúlismi og er stefna hv. ríkisstjórnar.