fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Menn eru komnir í fullkomið málefnaþrot þegar menn bera fyrir sig að ef menn styðja ekki popúlisma ríkisstjórnarinnar þá séu þeir ekki heiðarlegir, hvorki meira né minna. Ég frábið mér þetta. Einfaldleikinn er slíkur að menn eru bara komnir aftur í Gamla sáttmála 1262. Það á að miða við eitthvað sem gerist úti í Noregi. Norðmenn eru ágætir en við skulum bara halda okkur við íslenskan veruleika. Íslenskur sjávarútvegur er í samkeppni og það er stórmál. Við erum eina þjóðin innan OECD með sjávarútveg sem er ekki ríkisstyrktur. Norðmenn þurfa að ríkisstyrkja fiskvinnslu sína eins og staðan er núna og það er væntanlega þangað sem þessi ríkisstjórn, popúlíska ríkisstjórn, vill fara.
Svo er bara ekkert smámál: Sjálfstæðisflokkurinn orsakaði alþjóðlega fjármálahrunið. Virðulegi forseti, veit Obama af þessu af því að hann setti gríðarlega fjármuni af peningum bandarískra skattgreiðenda, að vísu til allra annarra landa en Íslands, til að mæta þessu? Ég vona bara að hv. þingmaður segi Obama ekki frá þessu. Hann verður örugglega mjög súr út í okkur.
Þetta er alltaf það sama, virðulegi forseti. Fyrst vilja menn ekki segja frá skattahækkununum. Ég er ekki bara fyrrum blaðberi Þjóðviljans heldur umboðsmaður þegar ég var 10 ára gamall. Þetta er nákvæmlega sama orðræðan og var þar hjá Alþýðubandalaginu, sem var flokkur sem var einu sinni til og dó úr leiðindum. Þar töluðu menn um að það ætti bara að ná í stórútgerðina, stórbændurna, milliliðina og heildsalana og þá yrði allt betra í landinu, ef við bara næðum peningunum af þessu hræðilega fólki. En þegar gengið er svona fram eins og hv. ríkisstjórn ætlar að gera, á örskotsstundu að gera þetta eins hratt og mögulegt er, þá mun það hafa áhrif, ekki á þessa aðila heldur á vinnandi fólk (Forseti hringir.) og sömuleiðis þá sem njóta lífeyris í þessu landi, sem eru kannski sérstakir óvinir hv. þingmanns og hv. ríkisstjórnar. Ég veit það ekki.