fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég verð að byrja á því að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir uppbyggilega ræðu. Mér fannst hann nú leggja það frekar til að það væri greitt í varasjóð og það var svona tillaga Framsóknarflokksins. En það sem við leggjum hér upp úr, að greiða niður skuldir, ég tel það ekki vera síðri kost því að þá minnkum við þrýstinginn á vextina og styrkjum ríkissjóð hvað það varðar. Ég tel það vera jafn gilda og jafnvel betri leið, en það væri ágætt að fá röksemd Framsóknarflokksins varðandi það. Eins kemur á óvart að Framsóknarflokkurinn taki ekki undir með okkur í ríkisstjórninni um að hafa hér þessa leið sem við höfum markað með auðlindagjöldin, að þau endurspegli, skattlagningin, raunveruleg verðmæti en ekki einhver verðmæti sem verða til mögulega í einhverjum samningum og eru kannski fjarri raunveruleikanum eins og tölur sýna greinilega þar um.