fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir góðar spurningar og byrja á spurningunni sem sneri að því hvort ætti að greiða í varasjóð eða borga niður skuldir. Vissulega er það alltaf gott skref að geta greitt niður skuldir en sömuleiðis er ágætt að hafa ákveðnar reglur hvað það varðar að safna í varasjóð. Það hefur gríðarleg áhrif á ríkissjóð, bara þær breytingar við lækkun verðbólgu. Það eru gríðarlegir fjármunir sem þar eru undir og hafa vissulega mikil áhrif á afkomu ríkissjóðs, bara við það að ná niður verðbólgunni. Vitanlega hefur áhrif þar sömuleiðis skuldahlutfall og skuldir ríkissjóðs og þetta spilar allt saman. Það er vissulega jákvætt að ný ríkisstjórn ætli hér að greiða niður skuldir. Við beinum því til ríkisstjórnarinnar sömuleiðis að velta því fyrir sér að auka í varasjóðinn. Ég vil síðan bara benda hv. þingmanni á það að við eyðum ekki sömu krónunni tvisvar, þ.e. ef við höfum þetta í útgjöldum eða borgum niður skuldir erum við á sama tíma ekki að eyða þeim fjármunum í uppbyggingu innviða. Það má vel vera að hvort tveggja geti gengið eftir en ég held að aðalþátturinn sem að þessu snýr sé það sem kemur að því hvernig ytra umhverfi þróast og hvernig verðbólga kemur til með að lækka.
Varðandi auðlindagjaldið þá kom það fram í ræðu minni í dag þar sem ég átti í orðaskiptum við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvað þetta varðar að Framsókn hefur ekki lagst gegn því að þetta verði skoðað en við leggjum til að það verði farin sú leið að það verði farið varlega og að það liggi greiningar að baki. (Forseti hringir.) Það var það sem við vorum að gagnrýna, að okkur finnst skorta verulega á hvað það varðar.