fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér fjármálastefnu sem er undanfari fjármálaáætlunar. Í stefnu sem þeirri vega einna þyngst lög um opinber fjármál eins og komið hefur fram í umræðunni, lög um opinber fjármál sem Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, lagði fyrst fram fyrir 11 árum. Tilgangurinn með þeim var að setja fram meginmarkmið til fimm ára í senn um umfang og þróun opinberra fjármála, einkum afkomu og efnahag ríkis og sveitarfélaga. Í lögunum kemur fram að auk þess skuli greint á almennan hátt frá því hvernig grunngildum um sjálfbærni og stöðugleika verði náð. Fram að þeim tíma hafði á vettvangi Alþingis lítið verið fjallað um horfur og framþróun ríkisfjármálanna eða fjármála sveitarfélaga til lengri tíma og formlegu og reglulegu samstarfi og samráði var í kjölfarið komið á milli stjórnsýslustiga. Það hefur reynst mjög jákvætt. Samráðið hefur verið tryggt við mótun fjármálastefnu og fjármálaáætlunar hins opinbera og unnið hefur verið eftir henni síðastliðinn áratug.
Eins og hér kemur fram og við vitum þá hefur lagasetningin verið til mikilla bóta og haft jákvæð áhrif á fjármál beggja, ríkis og sveitarfélaga. Til dæmis hafa lögin leitt til þess að reglulega er fjallað um það á vettvangi sveitarfélaga hvort fjárhagsleg þróun sveitarfélaga í landinu sé í samræmi við markmiðin, ella er þá hægt að fara í að greina veikleikana, hvað veldur og reynt að bregðast við, oft með samtakamætti sveitarfélaga gagnvart ríkinu eða öðrum sem að málunum koma. Til dæmis eru fjármálareglur sveitarfélaga mjög mikilvægar þar sem sveitarfélögum er gert að halda skuldahlutfalli innan ákveðinna marka. Skuldaviðmið gagnvart þeim er nú 150% og hafa flest sveitarfélögin haft mikinn metnað til að ná skuldunum vel niður fyrir það viðmið. En það eru einmitt miklar skuldir sem hafa sligað mörg sveitarfélög á undanförnum árum. Bara árlegur fjármagnskostnaður getur numið milljörðum króna og setur svo sannarlega strik í reikninginn í rekstri sveitarfélaga og bindur hendur þeirra. Reyndar er ég þeirrar skoðunar að lækka mætti þessi skuldaviðmið jafnvel niður í 100% til að fyrirbyggja vandamál vegna skuldasöfnunar. En þá þarf vissulega að tryggja nægar tekjur inn í málaflokkana sem sveitarfélögin eru ábyrg fyrir.
Lög um opinber fjármál í samstarfi ríkis og sveitarfélaga undirstrika mikilvægi þess að sveitarfélögin vinni þétt saman og leggi sitt af mörkum til að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og þau lögðu svo sannarlega sitt af mörkum við gerð samninganna í fyrra þegar gjaldskrár tóku ekki hækkunum. Þau sýndu mikla ábyrgð þá og hefur sú ákvörðun sveitarfélaga og samvinna og ákvarðanir um gjaldskrárlækkanir, eða ekki hækkanir með öðrum orðum, haft mjög jákvæð áhrif á efnahagsmálin. Það var gert þótt sveitarfélögin væru og séu vart mörg hver sjálfbær, ekki síst vegna málaflokka sem hafa flust í gegnum árin frá ríki til sveitarfélaganna. Við þennan flutning hefur, eins og við þekkjum, þjónustan aukist til muna og kröfurnar vaxið umtalsvert ár frá ári. Á sama tíma eru flest skuldsettustu sveitarfélögin að reyna að greiða markvisst niður skuldir á hverju ári.
En af því að ég kem inn á samspil þessara stjórnsýslustiga og mikilvægi samvinnu í fjármálum hins opinbera og í fjármálastefnunni og talað er um að gæta þurfi varfærni í rekstri sveitarfélaga og mikilvægi þess að ná hallalausum ríkisrekstri, þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra álits á nýgerðum kjarasamningum kennara. Telur hæstv. ráðherra að þeir samningar séu dæmi um varfærni í þessum efnum og hvaða áhrif telur hann að þeir kunni að hafa á efnahagsmálin á komandi mánuðum og misserum?