fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sína framsögu og framlagningu fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030. Fjármálastefna er rammi til næstu fjögurra ára en hún snýst ekki bara um tölur, reglur eða prósentur. Hún snýst um fólk, hún snýst um þjónustu sem við verðum að veita, hvort sem er heilbrigðisþjónustu, menntun, öryggi eða stuðning við þá sem veikast standa í samfélaginu. Til þess að við getum veitt þessa öflugu þjónustu til framtíðar þurfum við að byggja upp grunn og það gerum við ekki með sívaxandi skuldasöfnun og með eyðslu um efni fram. Við verðum að sýna varkárni, festu og forgangsröðun. Í dag eru efnahagsaðstæður þannig að aðhald í ríkisfjármálum styður við lífskjör heimilanna. Stóra verkefnið okkar er að halda áfram að negla niður vextina, enda er það svo að fyrir hvert prósentustig sem vextir lækka um hér á landi spara heimilin 35 milljarða kr. í vaxtakostnað. Auk þess skapa lægri vextir forsendur fyrir auknum umsvifum í hagkerfinu en fyrst verðum við að koma vöxtunum niður.
Staða efnahagsmála og það háa vaxtastig sem hér enn ríkir eru eindregin rök fyrir varfærni ríkisfjármálastefnu þegar til skamms tíma er litið. Það er þróttur í efnahagslífinu og staðan á vinnumarkaði er sterk. Verðbólgan er enn töluvert yfir markmiði þrátt fyrir að hún sé á niðurleið og það voru ánægjulegar fréttir sem bárust í morgun að verðbólga mælist nú 3,8% undanfarna 12 mánuði.
Við verðum að endurbyggja styrk ríkissjóðs. Það er tekið skýrt fram í fjármálastefnunni að aðhald ríkisfjármála muni ekki alltaf styðja við lífskjör heimilanna. Það munu eflaust koma upp aðstæður þar sem beita þarf ríkisfjármálunum af þunga til að styðja við fólkið í landinu. Það er mikilvægt að nýta tækifærin næstu misserin til að endurbyggja styrk ríkissjóðs sem tók á sig verulegt högg til að mæta kórónuveirufaraldrinum. Svigrúm hins opinbera til að mæta efnahagsáföllum er nefnilega heilt yfir minna nú en í aðdraganda þeirra tveggja stóru efnahagsáfalla sem hafa riðið yfir á öldinni, fjármálakreppunnar og heimsfaraldursins. Skyldi álíka stórt áfall ríða nú yfir er hætt við því að stjórnvöld væru í veikari færum en áður frá sjónarhóli opinberra fjármála til að styðja við heimili og fyrirtæki. Hættan á stórum efnahagsáföllum hefur ekki minnkað heldur aukist ef eitthvað er í ljósi varhugaverðrar stöðu í alþjóðamálum.
Í fjármálastefnunni er gengið út frá því að það verði innleidd hér ný stöðugleikaregla sem nú er í meðförum fjárlaganefndar. Það er gert ráð fyrir að því að hún verði orðin að lögum áður en þessi þingsályktunartillaga um fjármálastefnu verður afgreidd. Stöðugleikareglan felur í sér hámark á árlegum vexti til útgjalda að raunvirði í fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Það hámark, 2%, tekur mið af vaxtargetu landsframleiðslunnar til lengri tíma. Áður en stöðugleikareglan getur fyllilega náð markmiði sínu um að stuðla í senn að stöðugleika og sjálfbærni opinberra fjármála þarf aftur á móti að vinda ofan af þeim viðvarandi hallarekstri sem hefur verið á ríkissjóði. Í millitíðinni þurfa ríkisútgjöld að vaxa hægar að raunvirði, sem nemur tveggja prósenta hámarki stöðugleikareglunnar. Auk þess þarf að gæta varfærni í rekstri sveitarfélaga og þann rekstur þekki ég vel. Að öðrum kosti er hætt við að áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hækki vaxtastig og leggi byrðar á bæði kynslóðir nútíðar og framtíðar. Meginmarkmið fjármálastefnunnar er því að auka sjálfbærni opinberra fjármála og leggja þannig grunn að því að ný stöðugleikaregla nái markmiðum sínum að fullu.
Samspil stöðugleikareglu, stöðvun hallareksturs og útrýming óvissu um sjálfbærni opinberra fjármála styður við verðmætasköpun og lífskjör á Íslandi. Allar okkar útflutningsgreinar finna fyrir því að raungengi krónunnar er nokkuð hátt um þessar mundir, ekki síst hugvitsdrifnar greinar í alþjóðlegri samkeppni sem hafa stóraukið vægi sitt í íslensku efnahagslífi á undanförnum árum. Sveiflur í gengi krónunnar hafa stundum leitt af sér óstöðugt umhverfi hérlendis við veikingu krónunnar og verðbólgu. Þó að þessar greinar geti tekið við keflinu sem helsti drifkraftur lífskjara er mikilvægt að búa þeim fyrirsjáanleika og stöðuga efnahagslega fótfestu og samkeppnishæft vaxtarumhverfi. Í stjórnarmyndunarviðræðum ríkisstjórnarinnar í desember tók fjármálaráðuneytið saman minnisblað þar sem bent var á að það stefndi í viðstöðulausan hallarekstur út þennan áratug en staðan er orðin sú nú að samstiga ríkisstjórn hefur sett saman raunhæfa áætlun til að snarminnka ríkishallann á næsta ári og eyða honum árið 2027. Við verðum að koma jafnvægi á ríkisfjármálin, sem mun hafa jákvæð áhrif á verðbólguvæntingar og skapa svigrúm til frekari vaxtalækkana, heimilum og fyrirtækjum til heilla.
Á tímum fjármálastefnunnar er líka ætlunin að efla skattskil og loka glufum og draga úr undanþágum í skattkerfinu. Einnig erum við að innleiða nýtt gjaldakerfi, kílómetragjöldin. Til að mæta samdrætti í innheimtu á gjöldum af umferð hefur ríkisstjórnin sett sér þá stefnu að gjaldtaka af atvinnugreininni byggist á sjálfbærum og réttlátum auðlindagjöldum og renni að hluta til samfélagsins.
Ég er bara spennt að ræða fjármálastefnuna í fjárlaganefnd og ég hlakka til að dýpka umræðuna enn frekar þar.