156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[13:28]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa fjármálastefnu sem við höfum beðið spennt eftir enda er ekki á hverjum degi, sem betur fer, sem fjármálastefna er lögð fram. Það er yfirleitt eingöngu þegar ríkisstjórn tekur til starfa og þá fáum við að sjá aðeins inn í stefnu hæstv. ríkisstjórnar.

Ég verð að segja, virðulegur forseti, að umræðan verður oft þannig um þessi mál að ný ríkisstjórn býsnast yfir því að hér sé allt í kaldakoli og svo komum við, fyrrum stjórnarliðar, upp og verjum auðvitað störf okkar ríkisstjórna. Þetta minnir mig svolítið á það þegar ég var allra fyrst að huga að stjórnmálum, íbúi í Mosfellsbæ, og ég skildi ekki fyrir kosningar hvernig hægt væri að rífast um það hvernig bæjarsjóður væri staddur. Ég bara skildi það ekki. Ég var viðskiptafræðingur að mennt og ég bankaði bara upp á hjá bæjarskrifstofunni og bað um ársreikninga. Það er orðið svolítið langt síðan, virðulegur forseti, þannig að þetta var ekki á netinu eins og tíðkast kannski núna. Fjármálastjóri sveitarfélagsins hafði aldrei lent í öðru eins. Það hafði bara aldrei íbúi bankað upp á til að biðja um ársreikninga sveitarfélagsins og þetta kom honum mjög að óvörum enda voru ársreikningarnir ekki tilbúnir. Síðan hef ég lært ýmislegt í pólitík og það er meira að segja hægt að rífast um tölur á blaði, ég er búin að læra það.

En svo allrar sanngirni sé gætt og við drögum svona aðeins úr leikrænum tilþrifum þá hefur auðvitað verið hallarekstur á ríkissjóði, það er alveg ljóst, og það eru tölur á blaði sem sýna sig. Ég hefði gjarnan vilja að hallareksturinn hefði verið minni. Ég hefði mjög gjarnan viljað það. Ég hefði líka viljað að við hefðum getað sýnt meira aðhald á síðustu árum en á sama tíma verðum við líka að vera raunsæ varðandi þá stöðu og þann tíma sem við höfum farið í gegnum. Annað væri ósanngjarnt. Heimurinn allur fór í gegnum Covid og við sjáum það alls staðar hversu mikil áhrif það hefur haft á ríkissjóði. Ég viðurkenni það, virðulegur forseti, hafandi setið á Covid-tímanum í efnahags- og viðskiptanefnd, sem á nú almennt að vera tekjunefndin, að þá urðum við í rauninni stærsta útgjaldanefnd þingsins þar sem við vorum í því að fjalla um ríkisstyrki. Bara til að minna þingheim á það þá er ég hægri manneskja, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er ekkert búin að gleyma því, og þar af leiðandi var auðvitað svolítið skrýtið að vera stöðugt að fjalla um styrki til einkarekinna fyrirtækja. En það var algjörlega nauðsynlegt, algjörlega, og ég sé að hæstv. ráðherra kinkar hér kolli og ég er ánægð að sjá það.

Sem betur fer var líka mikil samstaða um þetta hérna í þinginu, sama á hvaða rófi sem fólk var pólitískt séð. Við sáum það að við vorum að fara í gegnum mikið áfall og við vissum í rauninni ekkert hvert áfallið var á þeim tíma. Við vorum í þoku alveg í byrjun. Við höfðum ekki hugmynd um nákvæmlega hvar þetta myndi enda en stóra málið hjá okkur var að verja störf í landinu, verja heimilin og til þess þurftum við að verja störfin, og til þess þurftum við að verja fyrirtækin svo þau gætu haldið úti þessum störfum. Ferðaþjónustan lagðist bara af á tímabili eða í mikinn dvala og við þurftum að setja ákveðna skel utan um þá mikilvægu atvinnugrein. Ég er alveg ofboðslega ánægð með árangurinn þegar litið er aftur í tímann. Það tókst. Þetta tókst. Atvinnuleysi varð hér aldrei verulegt vandamál. Fyrirtæki fóru ekki í hrönnum á höfuðið eins og hefði verið hægt að búast við ef ríkissjóður hefði ekki komið til. Sérstaklega gat ferðaþjónustan tekið strax við sér aftur þegar fólk fékk loksins að njóta frelsisins á ný og gat farið að ferðast. Það sýnir enn og aftur að ferðaþjónustan er undirstaða í hagvexti okkar, ein af okkar mikilvægustu atvinnugreinum.

Virðulegur forseti. Ég ætla líka að ítreka það að þótt hér segi fólk núna að við höfum kannski farið fulllangt í aðgerðum á tímum Covid, og það kann vel að vera þegar maður horfir í baksýnisspegilinn að það sé hægt að velta því fyrir sér, að það var aldrei í umræðunni hér í þingsal, aldrei. Ég var hérna á þeim tíma, virðulegur forseti, og það var ekki í umræðunni í þessum þingsal. Þegar ríkisstjórnin var aðeins farin að draga lappirnar og hugsa hvort við þyrftum að velta því fyrir okkur hvort rétt væri að framlengja þessar aðgerðir eða ekki, þá kallaði þáverandi stjórnarandstaða: Hvar eru stóru orðin? Meira en ekki minna? Ég minnist þess sérstaklega að formaður Viðreisnar, hæstv. ráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, kallaði hátt eftir þessu, hvar væru stóru orðin hjá þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, og gekk á eftir þessu. Ég held að við verðum líka að vera hreinskilin hvað þetta varðar. Svo bættist auðvitað ofan á þetta stríð í Evrópu og svo allir þeir fjármunir sem við höfum sett í varnaraðgerðir á Reykjanesskaga, bæði varnaraðgerðir fyrir Svartsengi, almannavarnaaðgerðir og annað en ekki síður uppkaup á húsnæði í Grindavík þar sem við vorum að verja fólkið í landinu, fólkið sem bjó í Grindavík.

Virðulegur forseti. Þetta var aðeins fortíðarspegillinn, hér erum við komin inn í framtíðina og erum að horfa vonandi fram á bjartari tíma. Þessi fjármálastefna horfir auðvitað til þess, eins og við vorum svo sem farin að sjá fram á, og við væntum þess að nú séum við að sigla inn í svona jákvæðari tíma og við getum hætt að nýta alla þá fjármuni sem farið hafa til að mynda í varnarveggi við Svartsengi eða uppkaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík, þ.e. að það verði hægt að nýta fjármunina núna í vegakerfið okkar, menntakerfið og heilbrigðiskerfið. Það er líka sama vegferð og fyrrverandi ríkisstjórn var á.

Mig langar aðeins að nefna, virðulegur forseti, að hér í umræddu þingskjali segir í greinargerðinni, með leyfi forseta: „Stöðugleiki og sjálfbærni opinberra fjármála er forsenda lífskjara til langs tíma.“ Ég er því hjartanlega sammála. Þá segir:

„Þróttmiklar útflutningsgreinar eru og verða áfram forsenda lífskjara á Íslandi. Blikur eru nú á lofti í alþjóðaviðskiptum, svo vægt sé til orða tekið. Í því samhengi er enn mikilvægara en ella að stjórnvöld geri það sem á þeirra valdi er til þess að búa útflutningsgreinum okkar samkeppnishæft og stöðugt umhverfi.“

Virðulegur forseti. Ég dreg þetta hérna fram sérstaklega vegna þess að í gær eða fyrradag voru kynntar aðgerðir er lúta að tvöföldun veiðigjalds, umtalsverðum skattahækkunum á sjávarútveginn sem er ein af okkar mikilvægustu útflutningsgreinum. Það er þar af leiðandi eðlilegt, þegar við sjáum hversu langt á að fara í einu skrefi í því, að við veltum fyrir okkur: Hvað segir þá ríkisstjórnin í nákvæmlega þessum orðum um að búa útflutningsgreinum okkar samkeppnishæft og stöðugt umhverfi? Erum við örugglega að tryggja það? Er hæstv. ríkisstjórn örugglega með þau gleraugu á í öllum ráðuneytum og í öllum sínum aðgerðum? Það er svolítið erfitt að sjá að það sé nákvæmlega það sem er uppi á teningnum þegar kynntar eru jafn stórtækar aðgerðir og voru kynntar varðandi hækkun skatta á útgerðina.

Ég hlýt líka, virðulegur forseti, að velta fyrir mér þessari tekjustefnu sem fjallað hefur verið um og fleiri hafa vísað í það í greinargerðinni, en þar er talað um að tækifæri séu til staðar til þess til að nýta núverandi tekjustofna til frekari tekjuöflunar. Mér finnst þetta áhugavert orðalag svo ekki sé meira sagt, því í framhaldi kemur svo: „án þess þó að leggja meiri álögur á einstaklinga“. Þannig að, virðulegur forseti, þá erum við að tala um eitthvað sem kemur út sem tekjulækkun á aðila en samt ekki á einstaklinga. En þetta er samt gert með því að fækka ívilnandi úrræðum og koma í veg fyrir skattasniðgöngu. Við getum öll tekið undir það að koma í veg fyrir skattasniðgöngu, en hvaða ívilnandi úrræði erum við að fjalla um hérna? Ég hef ekki heyrt hæstv. ráðherra svara því þó að hann hafi fengið slíkar spurningar hér eftir ræðu sína áðan en kannski kemur hæstv. ráðherra inn á það í lokaræðu sinni. Það held ég að væri til mikilla bóta því auðvitað köllum við eftir því.

Virðulegur forseti. Tíminn er nú að renna út og ég hafði mun fleiri punkta sem mig langaði að koma inn á. Ef ég næ að bæta einu við: Það er spennan í alþjóðamálunum. Það er viðfangsefni sem brennur á okkur öllum og ég vona, virðulegur forseti, að við getum sameinast um mikilvægi þess hér, þingheimur. (Forseti hringir.) Hér er talað um að það verði aukið fjármagn til varnarmála og væri gott ef hæstv. ráðherra gæti gefið okkur einhverja meiri innsýn í það hvað hann sér fyrir sér í þeim efnum.