156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[13:38]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér fjármálastefnu sem er undanfari fjármálaáætlunar, sem er lykilmál hverrar ríkisstjórnar, og þess vegna er ekki undarlegt að fólk fari hér yfir sviðið. Ég vil byrja á því að taka undir með síðasta ræðumanni að við erum vonandi að sigla inn í jákvæðari tíma, í fyrsta lagi tíma sem mun einkennast af traustatökum við stjórn efnahagsmála og ríkisfjármála. Fréttir morgunsins eru þær að verðbólga hefur ekki mælst lægri í langan tíma eða 3,8% sem eru gríðarlega góðar fréttir og mikilvægar vegna þess að eitt stærsta viðfangsefnið við stjórn ríkisfjármála er að styðja við vaxtalækkunarferli Seðlabankans. Það skiptir ekki bara máli fyrir ríkissjóð og sveitarsjóði heldur að sjálfsögðu heimili og fyrirtæki í þeirra ákvörðunum. Það er býsna margt sem hefur beðið eftir að vextir lækki eins og upphaf nýrra íbúðafjárfestinga eins og nýjar tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar endurspegluðu síðastliðinn þriðjudag og þannig mætti áfram telja. Við skulum vona að það verði áframhald af jákvæðum tíðindum.

Við munum kafa ofan í stefnuna, samspil hennar við nýtt frumvarp um stöðugleikareglu og síðan fjármálaáætlunina sjálfa í fjárlaganefnd á næstu dögum og vikum til þess að ganga úr skugga um það að þessi fimm ár sem fram undan eru einkennist af því sem ríkisstjórnin hefur boðað, nefnilega stöðugleika og traustatökum við fjármálastjórn en einnig að við göngum á innviðaskuldina sem hefur hlaðist upp að undanförnu, styðjum við samkeppnishæfni samfélagsins alls og nauðsynlegar viðbætur á ákveðnum sviðum. Það er ljóst að því verður ekki náð nema með ákveðnu aðhaldi við fjármálastjórnina.

Þessi vinna gæti þurft að taka mið af því, líkt og við sáum fyrir réttum tíu dögum síðan, að Evrópusambandið gaf það út að Evrópuríkjum væri heimilt að víkja sinni stöðugleikareglu, sem við erum nú að taka upp, til hliðar vegna fyrirsjáanlegra og nauðsynlegra útgjalda sem tengjast viðbúnaði vegna vár og varnarmála. Hvort það verði lagt til hér á þessum vettvangi að sambærileg heimild verði tekin upp skal ég ekki fullyrða um núna. En við þurfum að hafa augun á hinni alþjóðlegu þróun, bæði eins og hér hefur verið nefnt í greinargerð með stefnunni og í ræðum, og hugsanlegu og raunar yfirstandandi tollastríði í samskiptum ríkja en einnig því að Evrópa er að þétta raðirnar og búa sig undir virkari þátttöku innan NATO og virkara samstarf á sviði varnarmála og viðbúnaðar við hvers konar ógn. Það er því í mörg horn að líta.

Raunar er ég aðeins hugsi yfir því hvort þetta fimm ára sjónarhorn, eins mikilvægt og það var þegar það var innleitt, dugi okkur þegar við erum að horfa inn í framtíðina, sérstaklega í því sem lýtur að fjárfestingu og innviðauppbyggingu. Er kannski kominn tími til að við hugum að því að gera heildstæða innviðaáætlun fyrir Ísland, einhvers konar fjárfestingaráætlun þar sem við tökum ekki bara þær fjárfestingar sem A-hluti ríkissjóðs eða A1-hluti ætlar að takast á við á næstu árum, kannski 10–15 árum alla vega, heldur líka þær fjárfestingar sem aðrir ríkisaðilar og ríkisfyrirtæki ætla að takast á hendur? Í fljótu bragði verður ekki séð að það sé auðvelt að útvega sér heildstæðar upplýsingar um taktinn í þeim fjárfestingum nema þá eitt og eitt ár í senn á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins, sem hleypt var af stokkunum af þeim ágætu samtökum í samstarfi við Reykjavíkurborg fyrir margt löngu til að fá meiri fyrirsjáanleika á útboðsmarkaði. Ég held að fyrir hagstjórnina og fyrir stjórn opinberra fjármála, bæði til skamms og lengri tíma, sé tímabært að fara að huga að því að hafa heildstæðari innviða- og fjárfestingaráætlun fyrir Ísland sem næði til lengri tíma.

Segja má að fyrsta skrefið í þessu hafi verið tekið fyrir margt löngu með tilkomu samgönguáætlunar sem er í raun 40 ára gamalt fyrirbæri og var fyrst til 12 ára en síðan 15 ára og var lengi vel eina fjármagnaða langtímaáætlun hins opinbera á Íslandi. En jafnvel það hefur brugðist á undanförnum misserum. Það hefur ekki verið hægt að treysta samgönguáætlun vegna þess að fjármögnun hennar hefur riðlast vegna þess að einstaka verkefni hafa tekið til sín meira fé og önnur setið eftir þrátt fyrir það sem sagt hefur verið í fjárlögum, fjármálaáætlun og samgönguáætlun sjálfri. Þannig að til þess að takast á við innviðaskuldina, til þess að hafa festu og fyrirsjáanleika í því sem íslenska ríkið og fyrirtæki ríkisins eru að fara að gera í þessum efnum held ég að Alþingi í samvinnu við ráðuneytin, fjármálaráðuneyti, innviðaráðuneyti og önnur ráðuneyti eftir atvikum, myndi gera rétt í því að fara að huga að langtíma innviðafjárfestingaráætlun fyrir samfélagið. Þá er líka miklu markvissari og betri umfjöllun um forgangsröðun í því og hægt að vinna nauðsynlegar greiningar á ábata og valkostum í því efni hverju sinni í stað þess að það sé verið svona í gegnum fjölmiðla eða eftir öðrum leiðum að tala til ríkisaðila og stjórna fyrirtækja út frá því hvar við erum stödd í hagsveiflunni. Þetta myndi líka gera öllum kleift að undirbúa verkefni vel þannig að hægt sé að fara í þau þegar borð er fyrir báru eða á þarf að halda til að stuðla að auknum fjárfestingum í hinum opinbera búskap.

Stefnan er eitt af því sem þarna skiptir verulegu máli. Stöðugleikareglan er annað og líka fjármálaáætlunin. Þetta þurfum við að lesa saman til að tryggja að við höfum bæði svigrúm og þrótt en líka fyrirsjáanleika í fjármálum hins opinbera og náum þeim markmiðum sem við ætlum okkur fyrir utan það að við gætum þurft að horfa til stöðunnar á alþjóðavettvangi þegar við endanlega botnum þessa áætlanagerð á þessu vori og auðvitað tökum til endurskoðunar á næstu árum eins og árlegt er hér í þinginu.