156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[13:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Lög um opinber fjármál eru merkilegt plagg sem var samþykkt hér í þinginu í desember 2015 og hefur verið unnið eftir í að verða tíu ár. Þetta er alltaf forvitnilegt, við byrjum með fjármálastefnunni og svo fjármálaáætlun til fimm ára og síðan eru það fjárlög að hausti. Mig langar að spyrja hv. þm. Dag B. Eggertsson: Það kom fram í umræðunni í dag að í huga sumra hv. þingmanna er eins og ekkert hafi gerst hér á undanförnum árum. Það er talað um að illa hafi verið staðið að fjármálum ríkisins. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom upp áðan og talaði um einhverja 1.000 milljarða. En áföllin hafa náttúrlega verið gríðarleg. Árið 2019 var það Wow air sem var á þeim tíma talið hafa kostað ríkissjóð um 30–40 milljarða. Á þeim tíma var farið í nýja fjármálastefnu á miðju kjörtímabili vegna þessa og aftur var farið af stað með nýja fjármálastefnu árið eftir þegar Covid-19 braust út og áfallið sjálfsagt tíu sinnum stærra á þeim tímapunkti þó að okkur hafi þótt áfallið stórt þegar WOW air féll árið á undan. Síðan kemur stríðið í febrúar 2022 í Úkraínu og svo Grindavíkureldar fyrir einu og hálfu ári að verða. Mig minnir, og hæstv. ráðherra getur kannski komið inn á það, að það séu 80 milljarðar sem hafa farið í það mál. Er hv. þingmaður með einhverja skoðun á þessu? Hér er eins og sumir viðurkenni ekki þá stöðu sem hefur verið hérna í fimm ár og hvar við stöndum í dag miðað við þá fjármálaáætlun sem var lögð fram vorið 2020 fyrir árin 2021–2025. Þá var reiknað með að við (Forseti hringir.) værum á allt öðrum stað en við þekkjum í dag. Staðan er svo miklu betri. Í dag er hún rétt rúmlega 30% en það var reiknað með að hún færi yfir 50% á þessu ári í fjármálaáætluninni 2021–2025. Er þetta ekki öfundsverður árangur?