156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[13:52]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það getur verið ágætt að rifja það upp í þessum ræðustól að á árunum 2013–2020 var meðalverðbólga 2,4%. Ríkisfjármálin tóku stakkaskiptum og farið var í mikið átak, sérstaklega í lok þess tímabils, við að greiða niður skuldir þannig að ríkissjóður var kominn í allt aðra stöðu rétt fyrir Covid en hann hefði annars verið í. Ætli skuldahlutföllin hafi ekki verið komin niður í rúmlega 20%? Það var gott að eiga það inni þegar það gríðarlega áfall ríður yfir sem er Covid-19. Það var gríðarlegt áfall og ég vek athygli á því að í ríkisfjármálaáætluninni 2021–2025 var gert ráð fyrir sama uppsafnaða halla fyrir þá áætlun upp á 1.000 milljarða vegna áfallsins. Það eru gríðarlega háar tölur. Ég held að fólk, almenningur á Íslandi, geri sér ekki grein fyrir því, og margir hv. þingmenn í þessum þingsal, hvers konar afrek það var í sjálfu sér að leiða áfram og ná þeirri stöðu sem við náðum. Það er rétt að halda því alltaf til haga.

Varðandi verðbólguþróunina þá er mjög jákvætt að verðbólgan er komin undir 4%, sem er nákvæmlega það sem menn voru að áætla í gegnum fjárlögin og þá vinnu sem var búið að vinna á síðasta ári. Hún hefur bara þróast eins og unnið var með. Fyrir rúmum tveimur árum, í janúar 2023, var verðbólgan 10,2%. Og við vitum alveg hvað var í gangi í samfélaginu þá, bæði í framhaldi af Covid og síðan innrásinni í Úkraínu, það var mikill óstöðugleiki. Er þá hv. þm. Dagur B. Eggertsson ekki bara sammála mér um að þessar áætlanir hafi gengið vel miðað við þau fjárlög sem voru lögð fram í haust og unnið með, í þeim fjárlögum, nú þegar við sjáum þessa hröðu lækkun vaxta eins og við sjáum þessa mánuðina?