156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[13:55]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil ítreka þakkir fyrir þessa spurningu og ítreka að eins og fram kom í ræðu minni og í fyrra andsvari hefur ýmislegt verið vel gert og vel tekist til. Ég tek undir með þingmanninum að ríkisstjórnin sem tók við völdum 2013 tók við góðu búi, merkilegt nokk, eftir ótrúleg verkefni sem ríkisstjórnin þar á undan tókst á hendur, m.a. í ríkisfjármálum. Ég ítreka jafnframt að staðan hefði átt að geta verið sú að verðbólguþróun hér á landi hefði verið nær því sem við sjáum í mörgum löndum í kringum okkur ef haldið hefði verið af meiri festu á málum hér allra síðustu ár. Og innviðaskuldin er, eins og fjölmörg dæmi sýna, fyrir hendi, m.a. vegna þess að það tókst ekki að ná almennilega utan um þetta. Ég held að almenningur og fyrirtæki í landinu, hringinn í kringum landið, séu til vitnis um það að þau fyrirheit sem hafa verið gefin um fjárfestingarverkefni og uppbyggingu hafi brugðist að ýmsu leyti. Þess vegna er óþreyjan nánast áþreifanleg eftir ríkisstjórn sem tekur opinber fjármál traustatökum, endurgeldur innviðaskuldina og siglir okkur inn í almennilegt stöðugleika- og uppbyggingartímabil.