fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir sína ræðu. Ég fékk þó smá svona, með leyfi forseta, ég veit ekki betra orð, „flash back“ frá tíð fyrri ríkisstjórnar þegar ég hlustaði á ræðuna því að annars vegar hlusta ég eftir því að talað sé um mikilvægi þess að ráðast í auknar fjárfestingar í innviðum. Ég heyri annars vegar að hér þurfi að ná niður vöxtum og verðbólgu en hins vegar að það megi ekki fjármagna uppbygginguna eða sóknina varðandi veiðigjöldin og það eru þessar þversagnir sem togast á. Bara síðasta haust þurfti þáverandi ríkisstjórn að draga til baka fyrirhugaðar áætlanir varðandi fjárfestingar í spítölunum okkar um 2,4 milljarða. Á síðastliðnum fimm árum var meðalhallarekstur á ríkissjóði 117 milljarðar á ári og stefndi í stanslausan hallarekstur út þennan áratug. Þó að vissulega hafi í fjármálastefnu fráfarandi ríkisstjórnar verið talað um 2029 þá hefur núverandi ríkisstjórn fengið minnisblöð sem benda á augljósa veikleika í þeirri fjármálastefnu, sem sýndu fram á að stanslaus hallarekstur hefði verið út þennan áratug. Nú nokkrum mánuðum, nokkrum vikum eftir að ný ríkisstjórn er komin fram er lögð fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir hallalausum rekstri frá og með árinu 2028. Hér á að ráðast í innviðauppbyggingu og hún verður fjármögnuð með skynsömum hætti og innleiða á stöðugleikareglu til að draga úr vöxtum og verðbólgu. Ég vil því í rauninni spyrja hv. þingmann: Er hv. þingmaður fylgjandi stöðugleikareglunni? Vill hv. þingmaður ráðast í innviðauppbyggingu eða samdrátt í uppbyggingu innviða? Hvað er það sem hún er ósátt við í þessari fjármálastefnu sem hér er lögð fram? Ég vil fá það skýrt fram.