fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir andsvarið. Mig langar að koma því á framfæri hér að ég fékk upplýsingar um það að lækkun Landspítalans, sem hv. þingmaður vísaði til, hafði engin áhrif á árið í ár og fjárlaganefnd tók tillit til þessa. En mig langar að svara varðandi framkvæmdir og annað og orð mín varðandi stöðugleikaregluna. Þá er ég að benda á það að hún er tiltölulega bitlaus vegna þess að hún undanskilur fjárfestingu og uppbyggingu, þessa innviðauppbyggingu sem hv. þingmaður taldi upp hér áðan, en fjárfesting hins opinbera hefur einmitt verið einn helsti drifkraftur þenslu í hagkerfinu og það þekkjum við. Þannig að reglan eins og henni er stillt upp, sem stöðugleikareglu, og eins góð og hún er — ég er að benda á að hún grípur ekki í raun það sem helst veldur þessum óstöðugleika.