156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:07]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir svarið. Það sem ég lít á sem styrkleika einmitt í stöðugleikareglunni núna er að hún bindur hendur okkar ekki það fast að við getum ekki farið í þá nauðsynlegu innviðauppbyggingu sem fram undan er og ráðist á þá innviðaskuld sem fráfarandi ríkisstjórn skildi eftir sig. Það er þó gríðarlega mikilvægt þegar við ráðumst í ný regluleg útgjöld, hvort sem það eru ný verkefni eða afborganir lána, að þá sé aflað tekna fyrir því. Þannig að ég tel þetta í rauninni vera styrkleika. Ég geri mér grein fyrir því að við erum í stuttum ræðum hér varðandi nákvæmlega þá fjármálastefnu sem er lögð fram en eins og hún blasir við mér þá er hún mjög skynsöm leið til þess annars vegar að geta ráðist í nauðsynlega innviðauppbyggingu og hins vegar að ná niður vöxtum og verðbólgu með hallalausum ríkisrekstri. Það er í raun lykilatriði. Ég velti því fyrir mér í seinni ræðu hvort Framsóknarflokkurinn eða hv. þm. Ingibjörg Isaksen gæti lýst hvernig hún sæi fyrir sér að ráðast í innviðauppbyggingu á næstu árum, ná niður vöxtum og verðbólgu, svona hvernig hennar stefna myndi líta öðruvísi út.