fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er nú erfitt að átta sig á því hvert hv. þingmenn Framsóknarflokksins eru að fara í þessari umræðu. Fyrr í umræðunni geystist hér hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson og vildi fá varasjóð og leggja meira í hann heldur en að greiða niður skuldir. Hann taldi vera út á þetta að setja. Nú heyrist mér á hv. þm. Ingibjörgu Isaksen að það sem sé að sé að ekki sé gert ráð fyrir óvæntum útgjöldum og að innviðirnir séu svo slæmir og allt sé nánast í kaldakoli og þess vegna sé þessi áætlun að einhverju leyti óraunhæf. En það kemur ekkert uppbyggilegt í staðinn.
Er hv. þingmaður að tala um þessi útgjöld sem birtust hér allt í einu, t.d. uppgjör á ÍL-sjóðnum upp á 650 milljarða, sem er nú skilgetið barn Framsóknarflokksins, eða hvað er í gangi? Það væri mjög jákvætt að fá uppbyggilegar ábendingar um í hvað ætti að fara. Er þetta bara allt ómögulegt eða hvað? Ég held að það sé tímabært að hv. þingmenn Framsóknarflokksins, sem eru að skila þessu búi af sér, sem segja að innviðirnir séu þannig úr garði gerðir að þessi áætlun, sem gerir þó ráð fyrir því að það eigi að takast á við það og síðan að ná niður vöxtum og verðbólgu, sé einhvern veginn ekki nógu góð — hvað vill Framsóknarflokkurinn?