156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:11]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans andsvar en velti því um leið fyrir mér hvort hann hafi hreinlega verið staddur í þingsalnum þegar ég fór með mína ræðu og eins hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson. Við þekkjum það vel að hér hefur verið varasjóður. Hér hafa verið settir fjármunir í varasjóð, vissulega, til þess að mæta óvæntum útgjöldum. Ég held að það sé mikilvægt að hafa slíkan varasjóð og ég vona að núverandi ríkisstjórn þurfi ekki að takast á við þær áskoranir sem síðasta ríkisstjórn þurfti að standa frammi fyrir. Hins vegar er það kýrskýrt að það er dýrt fyrir ríkissjóð að skulda mikið, það er bara þannig, og við viljum hallalaus fjárlög. Það er draumurinn vissulega og við erum tilbúin til að leggja okkar af mörkum til þess að það verði niðurstaðan.

Það sem er hins vegar afar mikilvægt líka, af því að hv. þingmaður vitnar hér til þess að það séu misvísandi skilaboð í málflutningi manna, er að eðlilega er fólk, þótt það sé í sama þingflokki, og ég held að hv. þingmaður átti sig vel á því sjálfur verandi í þeim þingflokki sem hann er í núna, ekkert alltaf sammála þótt grunnstefnan sé sú sama og við séum sammála henni í hverjum flokki fyrir sig. En ég hvet hv. þingmann til þess að kynna sér söguna, af því að hann nefndi hér lánasjóðinn, því að þá áttar hann sig á því að þetta er alls ekki í boði Framsóknarflokksins. Það voru bankarnir sem tóku sig til og ákváðu í rauninni að bjóða upp á hærri lánakjör fyrir einstaklinga í landinu sem var gott á þeim tímapunkti en það olli stöðunni sem er hér í dag varðandi lánasjóðinn, ekki tillaga Framsóknarflokksins.