fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er óneitanlega furðulegt að hv. þingmenn afneiti sögunni. Það er bara þannig að menn breyta ekki sögunni. Það er ljóst að Framsóknarflokkurinn stóð að einkavinavæðingu á ríkisbönkunum í upphafi aldarinnar með þeim endemum að hlutirnir fóru á þann veg að það varð hrun. Framsóknarflokkurinn getur ekkert bullað sig frá því. Það er einfaldlega staðreynd. Síðan er framhaldið, ÍL-sjóðurinn sem við erum að gera upp núna, alfarið á ábyrgð Framsóknarflokksins. En það sem mér finnst merkilegt í umræðunni er að þegar það á að stoppa í gatið og nota málefnaleg sjónarmið, t.d. með innheimtu veiðigjalda og nota raunveruleg verðmæti þar að baki, þá reynir Framsóknarflokkurinn og hv. þingmenn hér hver af öðrum að segja að það sé bara stórvarasamt og jafnvel formaður Framsóknarflokksins kemur fram fyrir alþjóð og segir að það geti valdið meiri háttar slysi ef það á að skattleggja í samræmi við raunverðmæti.
Ég spyr bara: Á hvaða ferðalagi er Framsóknarflokkurinn að vilja ekki að raunverð sé notað til viðmiðunar sem skattlagningarandlag? Ég held að það sé alveg ljóst af þessari umræðu um fjármálaáætlun að það eru hér misvísandi skilaboð og bara furðuskilaboð frá Framsóknarflokknum í þessari umræðu. Þeir segja í einni ræðunni að þeir hafi skilað góðu búi og síðan að það sé ekki hægt að framfylgja þessari áætlun vegna þess að hér séu allir innviðir í kaldakoli. Hvort er það, frú forseti?