156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:16]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Það sem við erum hreinlega að benda á er að það er fátt nýtt í þessari fjármálastefnu sem hér er verið að leggja fram. Það eru sömu grunnforsendur og í fjármálaáætlun 2025–2029. Það sem vekur athygli er að það eru óljósar tekjuforsendur og það er ekki tekið tillit til innviðaskulda og fleiri þátta. Við erum að benda á það að áður en stöðugleikareglan verður sett á þá verði að endurskoða þessi lög um opinber fjármál, sem eru orðin tíu ára gömul. Það er eðlilegt eftir tíu ára reynslu að staðan sé metin og endurskoðuð, hvort það sé hægt að gera betur, því að öll viljum við gera vel.

En af því að hv. þingmaður kom inn á málflutning okkar hvað varðar hækkun veiðigjalda þá erum við einfaldlega að benda á stjórnsýsluna í því máli og verklagið og undirbúninginn sem við teljum að sé verulega ábótavant því að það er ekki búið að greina áhrifin, hvorki á sveitarfélög, greinina né annað hvað það varðar. Það er mikilvægt áður en þessi ákvörðun er tekin, þetta stóra skref sem mun hafa veruleg áhrif á landsbyggðirnar m.a. og atvinnugreinina, að við höfum matið fyrir framan okkur.