156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni andsvarið. Það er kannski alltaf snúið við að eiga þegar manni eru gerðar upp skoðanir og svo skammaður fyrir að hafa þær. Ég veit ekki til þess að ég hafi í nokkru samhengi nefnt áform eða skoðanir mínar um að afleggja veiðigjöldin. Ég tel bara að það sé ágætissátt um með hvaða hætti þau hafa verið útfærð og þau séu skynsamleg og þurfi að vera hófleg af því að við erum á sama tíma að setja þrýsting á atvinnugreinina varðandi fjárfestingu á forsendum loftslagsmála og -þróunar, bættrar nýtingar afla, fullnýtingar og fleira slíks. Þetta er einhver umræða sem er kannski ekki partur af þessu en ég verð samt að halda þessu til haga.

Það er þó ágætt að ríkisstjórnin hafi núna, eftir að ríkisstjórnarflokkarnir hafa sumir hverjir, ef ekki allir, tönnlast á því árum saman að það sé erfitt að skilja reiknireglu veiðigjalda — nú er rétt að halda því til haga að í frumvarpinu sem liggur fyrir er ekki verið að breyta reiknireglunni. Auðvitað sáu þessir aðilar bara um leið og þeir fóru að leggjast yfir þetta að þessi reikniregla er ekkert flókin, hún er bara sáraeinföld. Þess vegna viðhalda menn henni óbreyttri upp á punkt. Það er því kostur að sá hluti umræðurnar hafi stillst af. Þá er eftir það sem varðar með hvaða hætti lagt er mat á þetta. Mér finnst þetta hafa verið skynsamlega gert. Skatturinn er lykilaðili í þessum útreikningum eins og kerfið er núna og væntanlega með upplýsingum frá Fiskistofu og fleirum; ég man ekki nákvæmlega hverjir setja upplýsingar inn í púkkið. En ég held að við þurfum ekkert að leita annarra leiða. Við eigum að auka tekjur ríkissjóðs með því að stækka þessa köku, bæta nýtingu, auka verðmætasköpun, bæta í rannsóknir þannig að við getum mögulega sótt meira en við erum að sækja í dag og þar fram eftir götunum. Ég held að þessi mynd sem er sífellt reynt að draga upp til að auka tortryggni í (Forseti hringir.) garð útgerðar á Íslandi sé ekki neinum til góða, ekki gagnvart þessari lykilatvinnugrein í landinu. Ég held að þingmenn (Forseti hringir.) ættu að hætta því og einbeita sér frekar að því hvernig við getum stækkað kökuna í stað þess að búa til eina stærri sneið úr minni köku.