156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:42]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vonast til þess að hv. þingmaður kynni sér betur tillögurnar sem liggja á borðinu hvað varðar breytingu á veiðigjöldunum. Það er auðvitað þannig að það á að miða við raunvirði. Ég skoðaði nú í febrúar það viðmiðunarverð sem Verðlagsstofa gefur út og það munaði hæst 42% á því sem var raunverulega að gerast á mörkuðunum og í krónum talið voru það 350 kr. á kílóið. En auðvitað var það eitthvað minna fyrir aðrar stærðir, og þetta var í þorski. Það er allra hagur, þegar á að gera upp skatta, að það sé eitthvað nær raunveruleikanum en einhver tala sem kemur út úr samtali sjómanna og útvegsmanna þar sem miðað er við, það er svona breiða línan, 75% af raunvirði.

En hvað sem því líður vil ég taka undir með hv. þingmanni að rétt sé að skoða það að sækja auknar tekjur í hafið. Ég er á því að við þurfum að opna þessa ráðgjöf, fá önnur sjónarmið að borðinu. Við virðumst vera að fá hér hverja hörmungarfréttina af annarri frá Hafrannsóknastofnun, nú síðast hvað varðar grásleppuna, en það er ekki skoðun heldur er það staðreynd að í öllum tegundum sem hafa verið settar undir þessa stjórn með þessum aflareglum hefur það leitt til miklu minni afla. Það eru tækifæri til breytinga og það gerist auðvitað með því að opna umræðuna og fá önnur sjónarmið og vita hvort ekki sé hægt að ná eitthvað álíka og við sóttum í hafið fyrir 100 árum. Þá var það 120.000 tonnum meira af þorski en við erum að veiða núna. Og áður en þetta blessaða kerfi var sett á var aflinn um tvöfalt meiri en hann er núna. Það eru vissulega tækifæri og ég tek undir með hv. þingmanni hvað það varðar.