fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að það hafi ekki verið nein sérstök spurning í þessu en ég tek til mín brýningu hv. þingmanns í þá veru að kynna mér frumvarpið enn betur en ég hef þegar gert því að það versnar eiginlega við hvern lestur, svo að ég sé alveg heiðarlegur með það. Það er ekki á það bætandi. Kannski bara almennt varðandi frumvarpið, af því hv. þingmaður gerði það að umtalsefni, þá þykir mér — þótt það sé annað frumvarp en við erum að ræða hérna — í ljósi þess hvernig andsvörin snerust, frumvarpið sem liggur fyrir í samráðsgátt varðandi veiðigjöld teikna upp skilningsleysi en það er kannski enn alvarlegra að það teiknar upp skeytingarleysi núverandi ríkisstjórnar hvað afleiddu áhrif málsins varðar. Ég bara veit það, af því að nú situr hv. þm. Sigurjón Þórðarson við hliðina á hæstv. fjármálaráðherra hér í hliðarsal og þeir geta borið saman bækur sínar hvað þetta varðar, og er algerlega sannfærður um það að hæstv. fjármálaráðherra áttar sig á hættunni af afleiddum áhrifum þessa máls eins og það liggur fyrir. Annað er hreinlega útilokað.
Ég skal lesa málið nokkrum sinnum til að koma enn betur vopnaður í umræðuna en hingað til. En að sama skapi vil ég beina því til hv. formanns atvinnuveganefndar, Sigurjóns Þórðarsonar, að nýta tækifærið og eiga hér samtal í hliðarsal um möguleg afleidd áhrif þess að keyra um þverbak í gjaldtöku hvað varðar einn mjög afmarkaðan hluta heildartekna hins opinbera af sjávarauðlindinni og sjávarútvegi og vinnslu, og um áhættuna af því að minnka heildarskattspor sem af sjávarútvegi skapast í stað þess að stækka það, sem er það sem skiptir máli fyrir okkur.