156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:47]
Horfa

Árni Rúnar Þorvaldsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek hér til máls um þetta brýna mál og stóra mál sem er tillaga til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030, metnaðarfullt plagg hér á ferð. Ég hef verið að fylgjast með umræðunni í dag, bæði undir þessum lið og fyrr í dag, og það sem hefur sérstaklega vakið athygli mína í umræðunni, bæði undir þessum lið og síðan í óundirbúnum fyrirspurnum í dag, er að mér hefur fundist sem gömlu helmingaskiptaflokkarnir og fulltrúar þeirra hér á hinu háa Alþingi hafi endurtekið varðstöðuna um sérhagsmunina þegar kemur að umræðu um tekjuöflun ríkissjóðs hvað varðar aukin veiðigjöld. Auðvitað er það miður því að hér er auðvitað um mikið réttlætismál að ræða og brýnt og við styðjum það heils hugar og nauðsynlegt að það verði samþykkt sem fyrst.

Annað sem hefur vakið athygli mína í umræðunni er að mér hefur fundist sem þessir sömu fulltrúar þessara sömu stjórnarandstöðuflokka, hv. þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafi hálfpartinn beðist vægðar í umræðunni um hallarekstur ríkissjóðs á síðustu árum, tínt til hin ýmsu mál sem hafa orðið til þess að gera reksturinn erfiðan; áföll, Covid-faraldurinn, stríð í útlöndum, í Evrópu o.s.frv. Auðvitað eru það málefnaleg rök í sjálfu sér. Hér hafa ýmis áföll dunið yfir sem hafa leitt af sér erfiðari rekstur ríkissjóðs. Það er ekkert launungarmál. En hér var gengið svo langt áðan í umræðu að hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins var farinn að tala um hrunið 2008 og ég minnist þess ekki í umræðum hér á þingi gagnvart þeirri ríkisstjórn sem tók við eftir fjármálahrunið að henni hafi verið sýnd einhver sérstök vægð í umræðunni á þeim tíma gagnvart því að hér varð hrun, eins og sagt var í dag. Ég minnist þess ekki og hv. þingmenn geta leiðrétt mig ef svo er.

Ég kom aðallega hér upp vegna þess að sökum reynsluleysis þess sem hér stendur var ég að reyna áðan að koma í andsvar við hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur en vegna reynsluleysis, eins og fyrr segir, náði ég ekki að koma boðum til virðulegs forseta í tæka tíð. En í máli hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur, undir lok ræðu hv. þingmanns, bar á góma kjarasamninga kennara. Við vitum öll sem hér erum hvernig þau mál hafa þróast í vetur, hversu erfið sú samningsgerð var, hversu mikil átök hafa verið í þeim málum og til hversu mikilla bóta það hefur verið fyrir samfélagið að þeim samningum sé nú lokið með góðri sátt. Það er ekki síst að þakka núverandi borgarstjóra, Heiðu Björgu Hilmarsdóttur, að hafa gengið fram með skörulegum hætti sem varð til þess að samningar náðust að lokum, sem betur fer fyrir skólastarf í landinu og samfélagið allt. En hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir beindi undir lok ræðu sinnar spurningu til hæstv. fjármálaráðherra um það hvort hann teldi að þessir samningar sem þarna voru gerðir væru dæmi um varfærna nálgun í samningagerð eða áætlanagerð, væntanlega í tengslum við það að þessi þingsályktunartillaga nær til hins opinbera sem innifelur þá ríki og sveitarfélög. Þá ber nú svo vel til að hv. þingmaður er bæði bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga þannig að henni ætti að vera í lófa lagið að svara sjálf þessari spurningu sem hún beindi til hæstv. fjármálaráðherra hér áðan. Ég held að svarið liggi í augum uppi. Þetta var góð niðurstaða. Þetta var til bóta fyrir skólastarf í landinu. Þetta var til bóta fyrir samfélagið og því svo sannarlega góð niðurstaða að lokum sem tók náttúrlega allt of langan tíma og við misstum þessi mál í allt of mikil átök, sem ég held nú þegar upp var staðið að hafi verið að stóru leyti óþörf því að aðilar voru miklu nær en látið var í veðri vaka á sínum tíma. Þannig að það var verulegt ánægjuefni, ætla ég að segja, virðulegi forseti, að það hafi tekist að ná samningum milli aðila á þessum tíma og svo sannarlega til marks um varfærna áætlanagerð.