156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:52]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Rúnari Þorvaldssyni fyrir ræðuna. Nú átta ég mig ekki alveg á því hvort það er að mér vegið varðandi að biðjast vægðar. Ég var hins vegar að benda á þau efnahagsáföll sem sögulega í samhengi lýðveldisins hafa komið núna á fimm árum og sem eru án fordæma, hvort sem er að utan eða innan. Fjármálahrunið var gríðarlega stórt á sínum tíma þegar allt gerist þarna í október 2008 en það sem við erum búin að eiga við núna síðan í mars 2019 eru ótrúlegir hlutir. Það sem ég var að leggja áherslu á er að í allri efnahagsumræðu hér í þingsal þá er eins og þetta hafi gufað upp, í allri umræðu. Ég vil vita hvort þetta snúi að því vegna þess að það er rétt hjá hv. þingmanni sem kom inn á WOW air og Covid-19, innrásina í Úkraínu og Grindavíkurelda og það er það sem þetta sneri að.

Það sem ég kom líka inn á áðan í minni ræðu var hvernig náðist að greiða niður skuldir hér á árinu 2013 og fram til 2019, 2020 sem skapaði þær forsendur þegar Covid ríður yfir, WOW er árið á undan, að við vorum komin í gríðarlega góða stöðu, eftir að hafa greitt þetta mikið niður skuldir. Skuldahlutföll voru lág þarna eftir þetta skeið þar sem hafði verið verðbólga upp á 2,4% yfir sjö ára tímabil, frá 2013–2020, sem er örugglega það í sögunni sem hefur komið einna best út varðandi verðbólguþróunina. Á sama tíma var mikill hagvöxtur í landinu. Þetta er reyndar alveg ótrúlegt skeið. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson var því miður ekki í salnum til að heyra það sem hv. þm. Árni Rúnar Þorvaldsson kom inn á en ég skildi það og ræðu þingmannsins fyrr í dag þannig að það væri nákvæmlega það sama sem gerðist með efnahagsáfallið 2008; það var búið að borga niður skuldir. Það var lykilatriði. (Forseti hringir.) Skuldahlutfallið var komið niður í 17% sem kom okkur gjörsamlega í gegnum það efnahagsáfall. (Forseti hringir.) Þannig að það er ofboðslega mikilvægt í allri umræðu um þessi mál að rétt sé farið með hluti og að það byggist á einhverjum grunni.

(Forseti (HildS): Forseti minnir á að ræðutími í andsvörum er tvær mínútur.)