156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[14:57]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er ótrúlegt að vera kominn í umræðu um hið stóra efnahagshrun heimsins haustið 2008 sem hófst með vandamálum bandarískra lífeyrissjóða í ágúst 2007 þegar Freddie Mac og Fannie Mae lentu í efnahagslegum erfiðleikum með svokölluð undirmálslán. Ef við höldum áfram þá fer síðan þetta efnahagsáfall út um allan heim en það sem er kannski stóri munurinn í því hvernig var tekist á við þau áföll sem þjóðin varð fyrir haustið 2008 og því hvernig var tekist á við heimsfaraldurinn og þessi áföll vorið 2020 er að það var ekki farið í harðari aðgerðir en að skera niður okkar öflugustu kerfi. Það tók síðan mörg ár eftir hrunið að byggja kerfin upp aftur. Það var bara siglt áfram í gegnum þetta tímaskeið núna. Það hefur komið fram í umræðunni, fyrst við erum komin í þessa umræðu, hvað gerðist í mars, apríl, maí 2020 og með samþykkt fjármálaáætlunar 2021–2025 í júní 2020. Þar var bara full sigling; halda uppi þjónustunni, berjast fyrir fólkið í landinu, fyrir fyrirtækin, koma fólki í gegnum erfiðleikana. Það er stóri munurinn á efnahagsstjórninni sem var á þessum tveimur tímabilum, svo maður fái nú tækifæri til að halda því til haga. Svo minni ég á að minni hlutinn vorið 2020 var frekar að kalla eftir að meira yrði gert en var gert. Það er mikilvægt að halda því til haga í allri umræðu þegar við erum að ræða þessi efnahagsmál vegna þess að það var enginn í þessum þingsal sem vildi gera minna en var gert og framkvæmt heldur voru ýmsir sem kölluðu eftir því að enn lengra yrði gengið í efnahagsaðgerðum.