fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið og þessa spurningu til mín. Mér þykir það augljóst að framganga hennar þegar hún var að taka við borgarstjórastólnum og borgarstjórnameirihlutanum á sínum tíma hafi orðið til þess að það náðust að lokum samningar um þetta mikilvæga mál þar sem hún lýsti því yfir að hún styddi það samkomulag sem lagt var fram af hálfu ríkissáttasemjara. Mér þykir augljóst, það er alla vega augljóst í mínum huga, að það varð til þess að pressa myndaðist í málinu sem var mikilvæg á þessum tíma því að undir var skólastarf í landinu. Þess vegna var gríðarlega mikilvægt að þessi pressa myndaðist og að það væri skýrt hver afstaða þáverandi formanns stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem er núverandi borgarstjóri Heiða Björg Hilmisdóttir, væri til þess samkomulags sem lagt var fram á þeim tíma. Það var mikilvægt og það var rétt og varð til þess að mínu viti að samningar náðust að lokum.