156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[15:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Bara út af þeim orðum sem hér komu fram og tengdust mér hjá síðasta hv. þingmanni, sem ég vona að fari bara í andsvar við mig í kjölfarið, svo það sé bara sagt, við skulum tala um hlutina eins og þeir eru: Ramminn var samþykktur, sem er grunnurinn að orkuvinnslu vegna þess að við höfum gert mjög lítið. Vandinn er þessi: Við höfðum gert mjög lítið í orkumálum í fimmtán ár þegar kemur að raforkunni þangað til á síðasta kjörtímabili að kyrrstaðan var rofin, og í jarðhitanum í 20 ár. Ég ætla ekkert að fara í það þegar Samfylkingin leiddi ríkisstjórn og gekk þannig fram að hv. þm. Kristján Möller sagði: Það er búið að eyðileggja rammann. Menn voru að taka út alla mikilvægustu þættina, vatnsaflskostina. Förum ekki þangað. En þegar ég tók við embætti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þá sögðu allir við mig: Það er ekki hægt að koma rammanum í gegn. Það er ekki hægt. Þetta var fyrsta málið mitt og það fór í gegn. Hver var ástæðan fyrir því að þetta var sagt? Ein helsta ástæðan var sú að næststærsta orkufyrirtækið undir forystu Samfylkingarinnar, Viðreisnar og einhverra fleiri flokka sem ég man ekki hverjir voru, Pírata, var með þau skýru skilaboð, virðulegi forseti, að það væri ekki réttlætanlegt að virkja meira. Þetta var stefna Samfylkingarinnar á þeim tíma. Það er ekki réttlætanlegt að virkja meira. Það eru ekki hundrað ár síðan, það eru ekki tíu ár síðan, það eru innan við fjögur ár síðan. Þegar maður var að reyna að koma þessu máli í gegn þá vísuðu menn til næststærsta orkufyrirtækisins, undir forystu Samfylkingarinnar sem gaf þessi skýru skilaboð. Þegar kom að afgreiðslu rammans, virðulegi forseti, greiddi Samfylkingin, ekki frekar en Viðreisn eða Flokkur fólksins, ekki atkvæði með málinu. Þannig værum við algjörlega stopp. Sem betur fer fór mjög mikið af orkuframkvæmdum af stað á síðasta kjörtímabili og við fórum í jarðvarmann með mun öflugri hætti heldur en núverandi ríkisstjórn er að gera. Enginn hafði haft neinar umræður uppi um það, það gerðist ekkert fyrr en við tókum á því. En þetta er bara sagt af því að hv. þingmaður var að vísa í orð mín og vildi fá að vita nánar út á hvað það gekk. Þetta er ástæðan.

Það að halda því fram að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið alþjóðlegu fjármálakreppunni af stað, ég veit ekki hvort það er last en þetta er fullkomið ofmat á Sjálfstæðisflokknum, fullkomið ofmat. Sjálfstæðisflokkurinn er öflugur flokkur og hefur gert ótrúlega hluti en nei, alþjóðlega fjármálakreppan, það er ekki hægt að kenna Sjálfstæðisflokknum um hana og er svolítið barnalegt.

Ég ætlaði samt sem áður að koma hérna upp og tala um það að mér finnst umræðan orðin miklu betri. Ég man þegar við keyrðum þessi lög í gegn og hver keyrði þau í gegn, hver flutti málið? Það var fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson. Svo var það Vigdís Hauksdóttir, sem var þá formaður fjárlaganefndar, ég var varaformaður, sem hélt utan um það mál í gegnum þingið með góðum stuðningi frá okkur öllum í meiri hlutanum þar. Það náðist á endanum ágætissátt en það var ekki auðvelt. En það er búið að breyta algerlega umræðunni. Þess vegna þykir mér miður að menn skuli ekki kannast við þessa hluti. Mér finnst sérkennilegt þegar menn tala eins og þeir séu að taka við svo ofsalega erfiðu búi. Það stenst enga skoðun í samanburði við það sem gengur og gerist annars staðar. Það er alveg ástæða fyrir því að verðbólgan er að fara niður, með fullri virðingu fyrir ríkisstjórn sem tók við 21. desember. Það hefur ekkert verið gert sem hefur gert það að verkum að verðbólgan sé að fara niður eftir að sú ríkisstjórn tók við. Það sama má segja um atvinnustigið.

Við þekkjum verkefnin og við styðjum það svo sannarlega að hér ætli menn að ná niður skuldum. Við styðjum það svo sannarlega að menn ætli að hagræða í ríkisrekstri sem er lykilatriði. Ég ætlaði, það er bara svo stuttur tími, að fara aðeins yfir það sem menn tóku við 2013 og mistökin sem voru gerð 2009–2013. Ég næ því ekki núna. Ég skal viðurkenna það að þegar hæstv. fjármálaráðherra talar er það oft sem söngur í mín eyru þannig að ég hef ekki áhyggjur af ræðunum. Ég hef meiri áhyggjur af því hvað ríkisstjórnin gerir eins og ég fór yfir í minni fyrri ræðu. Svo er líka búið að blása af mikilvægustu hagræðingartillöguna hjá þeim ágæta hópi sem kom með tillögurnar, um að breyta lögum um opinbera starfsmenn. Það var blásið út af borðinu af ríkisstjórninni mjög hratt og hún fór yfir í það á blaðamannafundinum þar sem þetta var kynnt (Forseti hringir.) að kannast ekkert við það hvað þessi hópur var að segja. En þær eru ýmsar, áhyggjurnar, virðulegur forseti, og mikilvægt að við ræðum þessi mál áfram.