156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

fjármálastefna fyrir árin 2026--2030.

223. mál
[15:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir fróðlegar umræður þar sem mikið hefur borið á yfirferð yfir nýliðna sögu og nákvæmlega hverjir beri ábyrgð á ýmsum þeim áföllum sem íslenskt þjóðarbú hefur mátt þola á þeim tíma. Ég held að slík umræða geti nú svo sem verið gagnleg en ólíklegt að hún verði leidd til lykta í þessum sal í ljósi þess að hér eru nokkuð skiptar skoðanir um túlkun hennar. Ég vil þó gera einn punkt hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur að mínum sem er að tölurnar ættum við ekki að þurfa að deila um. Sama hvar við liggjum í mati á orsökum þá ættum við að geta verið nokkuð sammála um það að af sögunni þurfum við að draga lærdóma.

Ef ég lyfti mér örlítið upp yfir kannski þann tón sem oft vill verða ofan á í samskiptum í þessum sal og reyni að draga saman það sem ég tel vera rauðu línurnar eða þræðina í umræðunni sem hefur átt sér stað hér í dag þá er það samstaða þingheims um að sjálfbær ríkisfjármál eru gríðarlega mikilvæg. Það hlýtur þá að vera ánægjulegt að við höfum einmitt verið að ræða hér í dag um fjármálastefnu sem gerir ráð fyrir hallalausum ríkisfjármálum ári fyrr en áður var gert ráð fyrir. En það er einmitt líka rauði þráðurinn í því sem hér hefur komið fram í dag að besti undirbúningurinn undir óvissa framtíð er góð staða ríkissjóðs sem leyfir honum að takast á við ófyrirséð áföll, hver svo sem þau munu reynast vera. Við vonumst auðvitað öll til þess að þau verði fá og lítil en við hljótum að þurfa að axla þá ábyrgð að geta tekist á við stærri og erfiðari hluti. Ekkert er meiri stuðningur í því efni heldur en nákvæmlega góð staða ríkissjóðs, lágar opinberar skuldir.

Ég tek síðan undir þau sjónarmið sem hér hafa komið fram, m.a. í máli hv. þingmanna Ingibjargar Isaksen, Þórarins Inga Péturssonar og Dags B. Eggertssonar, að mikilvægt er að við horfum til lengri tíma. Ég vék að því í upphafi að það er ákveðin þróun í gangi í hinum vestræna heimi sem Ísland er engin undantekning á. Þjóðir eru að eldast, byrðin á opinberum kerfum er að vaxa. Það út af fyrir sig er ástæða til að staldra við og sammælast um ábyrga stefnu í fjármálum hins opinbera.

Hvað varðar síðan frekari útfærslur þá hlakka ég mjög til að eiga umræðu við hv. þingmenn eftir helgina þegar við förum yfir fjármálaáætlun.