menningarminjar.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um menningarminjar. Samkvæmt lögunum eru öll hús og mannvirki sem byggð voru árið 1923 eða fyrr friðuð á grundvelli aldurs. Auk þess mæla lögin í dag fyrir um verndun annarra húsa og mannvirkja sem voru reist á árunum 1924–1940, svokallaða umsagnarskyldu. Þannig er löggjöfin í dag sem þýðir að eigendur þeirra húsa og mannvirkja þurfa að leita álits Minjastofnunar Íslands áður en þeir mega breyta, flytja eða rífa þau.
Þetta frumvarp felur í sér mjög mikilvæga einföldun. Með því er lagt til að þessi umsagnarskylda, sem ég fór hérna yfir, verði beinlínis lögð af og í stað þess verði almenningi og sveitarfélögum veitt heimild til að leita álits Minjastofnunar Íslands óháð byggingarári húss eða mannvirkis. Þetta er mikilvægt mál til þess að draga úr reglu- og stjórnsýslubyrði.
Umsagnarskylda Minjastofnunar Íslands tekur mjög stóran skerf af vinnu stofnunarinnar en hús og mannvirki sem falla undir umsagnarskylduna eru í dag rúmlega 8.000 talsins eða um 63% af húsum og mannvirkjum sem falla undir lög um menningarminjar. Þá hefur umsagnarskyldan reynst íþyngjandi fyrir sveitarfélög og húseigendur. Grundvallaratriði er að það eru ekki talin sterk fagleg rök heldur fyrir því að réttlæta gildandi viðmiðunarártal í lögum og þetta hljótum við að staldra við. Fágæti eykur varðveislugildi minja en hið gagnstæða dregur úr því. Ljóst er að hvorki er hægt né æskilegt að vernda allar menningarminjar. Það þurfa að vera fagleg rök fyrir slíkri vernd. Mörg hús falla nú þegar undir hverfisvernd á grundvelli skipulagsáætlana sveitarfélaga og reynslan sýnir okkur að sveitarfélög eru alla jafna viljug til að standa vörð um varðveisluverð hverfi og götumyndir. Ég held að það sé skynsamlegra að sérfræðingum Minjastofnunar Íslands sé veitt svigrúm til að fást frekar við friðuð og friðlýst hús og mannvirki og önnur varðveisluverð hús sem falla utan aldursviðmiða en auk þess hefur reynslan sýnt að almenningur leitar til stofnunarinnar um hús og mannvirki byggð eftir 1940, enda eru mörg hús sem falla utan umsagnarskyldu með mjög hátt varðveislugildi.
Það má líka halda því fram að íþyngjandi fyrirkomulag, eins og við búum við í dag, dragi úr getu Minjastofnunar Íslands til að fjalla á vandaðan hátt um öll mál sem til lengri tíma getur haft neikvæð áhrif á varðveislu húsa, annarra mannvirkja og fornminja með hátt varðveislugildi sem sannarlega þarf að vernda. Það er mitt mat að með þessu frumvarpi séum við að fækka hindrunum í kerfinu og beina sérfræðiþekkingu Minjastofnunar Íslands að því sem skiptir mestu máli.
Forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.