156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[15:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið hissa á því að þetta frumvarp sé komið hér inn í þriðju tilraun. Það er hárrétt sem hæstv. ráðherra sagði, það hefur verið reynt að koma inn með sambærileg ákvæði áður og ekki hefur náðst samstaða um það í þinginu. Ég er ein af þeim sem töldu þau frumvörp ganga of langt og taldi að við værum að ná bara, eigum við að segja sæmilegri málamiðlun síðast þegar við gerðum breytingar á húsaleigulögum. Almennt hefur verið talað um að húsaleigulögin veiti bara nokkuð góða réttarvernd. Þau vandamál sem hafa verið til staðar á leigumarkaði snúa fyrst og fremst að framboðsskorti. Nú mun þetta frumvarp klárlega ekki auka framboðið. Ég held að við hljótum öll að geta verið sammála um það. Einhver okkar kunna að hafa þær áhyggjur að það muni mögulega draga úr framboðinu sem þá hlýtur að auka enn frekar á vandann ef við erum þá sammála um að í grunninn snúist þetta um framboðsvanda.

Mig langar í raun að spyrja hæstv. ráðherra: Er það einlæg sannfæring ráðherrans og núverandi ríkisstjórnar að í þessu felist mikil réttarbót? Telur hæstv. ráðherra að með samþykkt þessa frumvarps getum við komið í veg fyrir í rauninni öll þau vandamál sem upp kunna að koma á leigumarkaði og kannski þá sérstaklega þau mál sem við höfum séð í fjölmiðlum, sem eru hræðileg, þegar verið er að leigja fólki algjörlega ófullkomið húsnæði sem stenst engar kröfur um öryggi eða annað?