156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[15:32]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar góða andsvar. Nei, ég tel í engu að við séum að girða fyrir allt og að þetta sé einhver töfralausn á því og það verði bara allt slétt og bjart fram undan. Hins vegar vitum við það og talið er að nú þegar séu um 37.000 einstaklingar vantaldir inni á þessum leigumarkaði. Hvort og hvaða áhrif það hefur á leigu til framtíðar, hvort við erum að draga úr og hvort þetta kemur í veg fyrir og aðstoðar okkur í baráttunni gegn þeim húsnæðisvanda sem við er að eiga í dag — ég vonast til að svo verði og að það verði sýnilegt fljótlega.

Fyrirsjáanleiki leigutaka er líka undir í þessu frumvarpi. Við teljum afskaplega mikilvægt að auka réttindi leigutaka og í þessu tilviki að tryggja a.m.k. 12 mánuði í friði frá leigusölum sem hafa ítrekað sýnt það á verulega óvæginn hátt hvernig þeir hafa í rauninni nýtt sér veika stöðu leigutakanna með því að segja þeim jafnvel upp samningi eftir örfáa mánuði til að endurnýja hann og bjóða þeim samninginn á mun hærra verði, hvernig þeir hafa verið að tengja þetta, og það hefur bara verið sýnilegt, og nýtt sér veika stöðu fjölskyldna með því að stilla þeim upp við vegg: Annaðhvort borgar þú það sem upp er sett, kæri leigutaki, eða þér er sagt upp og þú getur fundið einhvers staðar annars staðar íverustað. Ég tel þetta mjög svo rétt skref, stórt skref í rétta átt, en fullkomið mun það ekki verða. Hvað lýtur að því að vera búin að mæla fyrir þessu frumvarpi áður þá er stór munur á stöðunni í dag og því sem var þegar hv. þingmaður var í ríkisstjórnarflokkunum. Við erum í ríkisstjórn í dag og þetta frumvarp er sem sagt að verða að lögum.