156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[15:34]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Hún er keik og er það gott. Í rauninni var grundvallarspurningin mín hvort hæstv. ráðherra hefði svona ofboðslega mikla trú á þessu frumvarpi. Ég átta mig á því að það hefur verið vilji inni í ráðuneytinu til að koma þessum breytingum áleiðis en sá vilji held ég að hafi fyrst og fremst orðið til hjá verkalýðshreyfingunni — og ágætt að einn hv. þingmaður sem áður tilheyrði henni labbi þá hér inn. Ég hef gagnrýnt það og ég hef talið að fólk í verkalýðshreyfingunni hafi í rauninni verið að reyna að segja okkur þingmönnum fyrir verkum. Það var algerlega svoleiðis inni í hv. velferðarnefnd á síðasta kjörtímabili þegar fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni komu þar inn og raunverulega hótuðu þingmönnum að það væri búið að semja um eitthvað í kjarasamningum og þar af leiðandi ætti það bara að fara í gegnum þingið. Ég var bara fegin að geta staðið í lappirnar og er bara stolt af því að þjóðkjörnir fulltrúar standi í lappirnar og standi við sína eigin sannfæringu. Við náðum þessum breytingum fram vegna þess að við höfðum einfaldlega ekki trú á því að þær gerðu góða hluti. Við höfðum einmitt trú á því að þær gætu aukið enn frekar á vandann.

Ég ætla þá að skilja orð hæstv. ráðherra, fyrst henni er í mun að gera þetta að lögum, þannig að hún telji að þetta muni bæta stöðuna verulega. Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í eðli þeirra samninga. Það er eitt af því sem við veltum mikið upp í velferðarnefnd á síðasta kjörtímabili. Þess vegna einmitt sammæltumst við um að það væri kannski allt í lagi að þeir sem raunverulega gera sig út fyrir að vera leigufélög, að vera í þeim viðskiptum að stunda útleigu húsnæðis, myndu einmitt gefa upp samningana. En við vitum líka að það er ofboðslega margt fólk sem leigir út eitt og eitt herbergi, kjallaraíbúðina mögulega, til sonar eða einhverra ættingja, vina og vandamanna, á verði sem við myndum öll segja að væri almennt undir markaðsvirði. En er ég ekki að skilja hæstv. ráðherra rétt að með þessu frumvarpi er gerð krafa á alla þessa aðila að skrá leigusamningana sína? (Forseti hringir.) Jafnvel þó að þeir hafi verið til staðar í svolítinn tíma þá mun þurfa skrá þá eftir næstu áramót, ef ég skil þetta rétt, (Forseti hringir.) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verður heimilt að beita háum sektum á þá sem ekki gera það.