húsaleigulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Beita háum sektum — það kemur nú ekkert fram hér hversu háar sektir eigi að vera hér inni. Hér eru engar krónutölur um það. Ég er algjörlega 100% sannfærð um að þetta sé til góðs. Ég er 100% sannfærð um að þetta muni í rauninni koma frekar í veg fyrir svarta útleigu. Ég er algjörlega sannfærð um það, hvernig sem á það er litið, að svo sé. Ég líka veit úr hvaða flokki hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kemur, sem gjarnan hefur verið bendlaður við alls konar sérhagsmunaöfl og alls konar sérhagsmuni og varnir gagnvart því. Við í þessari ríkisstjórn erum ríkisstjórn almannahagsmuna, við erum ríkisstjórn verkstjórnar og við munum halda því áfram með í rauninni þá góðu trú að þau verk sem við erum hér að vinna á hinu háa Alþingi séu til bóta fyrir samfélagið í heild sinni, bara fyrir alla. Við erum ekki að vinna bara fyrir suma.